Veik jarðlög og heitt vatn hægðu á framkvæmdum Haraldur Guðmundsson skrifar 22. apríl 2014 07:00 Verktakar í Norðfjarðargöngum hafa síðustu vikur þurft að styrkja göngin með járnbentum steypubogum. Mynd/Ófeigur Örn Ófeigsson/Hnit
Framkvæmdir við Norðfjarðargöng eru nú á eftir áætlun. Verktakar í göngunum hafa síðustu fjórar vikur glímt við veik jarðlög sem hægja á gangagerðinni. Vaðlaheiðargöng í Eyjafirði eru enn á áætlun þrátt fyrir að mikið flæði af heitu vatni hafi tafið framkvæmdir. „Við erum að glíma við veik setlög sem kalla á hæga yfirferð og miklar styrkingar,“ segir Guðmundur Þór Björnsson hjá verkfræðistofunni Hnit, sem fer með umsjón og eftirlit með framkvæmdum vegna Norðfjarðarganga. Göngin eru nú 1.250 metra löng og verktakar grafa bæði frá Eskifirði og Fannardal í Norðfirði. „Eskifjarðarmegin erum við búin að vera að glíma við þessi óstöðugu setlög og svo var byrjað heldur seinna en reiknað var með í Norðfirði. Það var út af erfiðu tíðarfari í desember og janúar sem gerði alla jarðvinnu erfiða,“ segir Guðmundur. Hann segir göngin nú lengjast um 15-20 metra á viku en að meðalafköst séu um 55 metrar á viku. „Þetta er eiginlega þriðja svona lagið sem við förum í gegnum. Þetta er svo sem ekkert sem við gátum ekki búist við en satt best að segja erum við hundleiðir á þessu. En við höfum fengið alveg glimrandi fína kafla inni á milli. Það er því ekkert annað að gera en að halda áfram og svo losnum við við þetta og þá verða allir glaðir aftur.“ Verktakar í Vaðlaheiðargöngum eru nú komnir fram hjá þeim sprungusvæðum sem þeir lentu á frá því um miðjan febrúar. Mikill tími hefur farið í að þétta berg í kringum sprungurnar og hefta vatnsflæði og það hefur tafið gangagerðina. Um 350 lítrar af 46 gráða heitu vatni streyma enn úr stærstu sprungunni á hverri sekúndu og mynda talsverða gufu við gangamunnann og hita og raka innar í göngunum. „Við erum komnir 250 metra inn fyrir þá sprungu. En við höfum mikið þurft að bergþétta og á meðan erum við ekkert að sprengja. Við fórum niður í allt að tíu metra á viku en göngin höfðu fram að því lengst um 55 metra á viku að meðaltali,“ segir Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga hf. Göngin eru nú 2.150 metra löng. „Við erum enn á áætlun og verðum það svo lengi sem það kemur ekki mikið af þessu til viðbótar.“
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Skorar á Bjarna Guðjónsson að mæta sér Spenntur fyrir fundi með „góðum vinum Bandaríkjanna“ Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun Sjá meira