Lífið

Mikil fegurð getur verið óhugnanleg

Ási
Ási Vísir/Ásta Kristjánsdóttir
Fatahönnuðurinn og teiknarinn Ásgrímur Már Friðriksson heldur pop-up-markað á Loft Hosteli í Bankastræti á morgun frá kl. 12-18.

„Ég var duglegri að teikna hér áður fyrr, var birtur í erlendum og innlendum miðlum og vann einnig verkefni heima. Það er ótrúlega góð tilfinning að koma sér aftur í teiknifílinginn eftir nokkurra ára hlé. Áður en ég fór í Listaháskóla Íslands, var ég á myndlistarbraut í FB. Einnig kenndi ég um tíma tískuteikningu í LHÍ,“ segir Ásgrímur.

„Ég vinn aðallega með andlit og fólk. Fegurð heillar mig, þar sem mikil fegurð getur verið óhugnanleg,“ segir Ásgrímur jafnframt og kveðst spenntur fyrir helginni, þar sem Reykjavík Fashion Festival og HönnunarMars séu í gangi.

„Pop-up-markaðir eru aðeins brot af þeim fjölmörgu uppákomum á augnayndinu og hnossgætinu sem HönnunarMars er.“

Aðspurður segist Ásgrímur þó alls ekki vera myndlistarmaður.

„Ég vil taka það skýrt fram. Ég er teiknari. En ef litið er yfir ferilskrána mína, er kannski erfitt að segja til um hvað mitt aðalstarf er. Ég hef komið víða við, var yfirhönnuður hjá E-Label fyrstu árin, einn af forsprökkum KIOSK, sá um búninga hjá Sylvíu Nótt, var aðstoðartískustjórnandi hjá danska tímaritinu Cover, var með þátt á SkjáEinum, vann hjá umboðsskrifstofunni Eskimo og svona mætti lengi telja. Í augnablikinu er ég að einblína á eigin verk og vinnu. Í raun hef ég alltaf unnið fyrir aðra og finnst vera kominn tími á að gera mitt eigið.“

Hér að neðan má sjá nokkur verk Ásgríms.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×