Dönsurum létt við starfslokin Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 8. mars 2014 09:00 Miklir árekstrar urðu á milli dansaranna og Láru Stefánsdóttur við uppfærslu dansverksins Vorblót síðasta vor. Ástæðan var Lára samdi fyrir hönd dansaranna án þess að bera undir þá og fannst dönsurunum troðið á rétti sínum. Vísir/GVA „
Það hafa fjórir starfsmenn hætt hjá Íslenska dansflokknum frá því Lára hóf störf sem listdansstjóri, og ekki bara dansarar,“ segir Hannes Þór Egilsson, dansari. „Svo hafa margir farið í leyfi undanfarna mánuði og í raun beðið eftir að hún hætti, þar á meðal dansarar sem hún hafði nýlega ráðið.“ Í gær var undiritað samkomulag milli Láru og mennta- og menningarmálaráðuneytisins um starfslok hennar. Í viðtali við Fréttatímann segir hún starfið hafa snúist upp í martröð eftir að dansarar flokksins snérust gegn henni, kvörtuðu undan henni í fjölmiðlum og sökuðu hana um einelti. Lára hafnar því í viðtalinu og segist einfaldlega hafa gert kröfur og hafi viljað auka metnað flokksins. „Lára talaði mikið um stefnubreytingar en var algjörlega stefnulaus stjórnandi. Við dansararnir tjáðum oft óánægju okkar við hana, á yfirvegaðan og kurteisan hátt, og báðum um skýrari sýn en það gerðist aldrei neitt,“ segir Hannes. Hann segir ítrekað hafa verið troðið á rétti dansara vegna samskipta- og skipulagsleysis stjórnanda. Einnig að Lára hafi hafið störf ákveðin í að bæta fjárhagsstöðu, fjölga áhorfendum og ferðast meira um landið með sýningar. „En með hennar stjórnarháttum þá varð staðan á öllum þessum þáttum verri.“ Síðasta vor skrifuðu dansararnir Láru bréf og báðu hana að segja af sér vegna óviðunandi ástands innan flokksins. Hún hafnaði því. Í kjölfarið leitaði Hannes á ný mið og fór í launalaust leyfi frá flokknum því hann treysti sér ekki til að vinna lengur með Láru. Hann sagði svo starfi sínu lausu í desember því engar breytingar virtust vera í sjónmáli. Samkvæmt dönsurum sem Fréttablaðið ræddi við versnaði ástandið til muna síðasta vor. Þá sendu þeir skýrslu um stöðu mála til mennta- og menningarmálaráðuneytisins og báðu um aðstoð. Ráðuneytið brást við fjórum mánuðum síðar og varð sá biðtími til þess að fleiri dansarar gáfust upp á ástandinu og fóru í leyfi. Ráðuneytið heimilaði að vinnusálfræðingur starfaði með flokknum, sem var var ráðinn af Láru og ræddi við alla starfsmenn flokksins síðasta haust. Dansararnir fengu aldrei að heyra niðurstöðu skýrslu sálfræðingsins og engin úrlausn varð á málum fyrr en nú þegar Lára hefur samið um starfslok sín. Dönsurum er létt við starfslokin og sagði dansari sem blaðið ræddi við að þau séu bjartsýn á framtíðina. „Við erum mörg hver búin að taka þátt í uppbyggingu á flokknum og þykir mjög vænt um þessa einu dansstofnun á Íslandi. Nú viljum við bara byggja flokkinn aftur upp og trúum að það sé hægt vegna þeirrar samheldni sem hefur alltaf ríkt í flokknum fyrir utan síðasta árið.“
Tengdar fréttir Fann strax fyrir mótlæti í dansflokknum Lára Stefánsdóttir segir tal um að hún misþyrmi dönsurum óvægið. 7. mars 2014 10:15 Lára hætt hjá Íslenska dansflokknum Átök hafa verið innan flokksins undanfarin misseri. 5. mars 2014 14:24 Segir dansara flokksins staðnaða í viðhorfum Stefán Baldursson, óperustjóri og fyrrum Þjóðleikhússstjóri, segir fréttir af starfslokum Láru Stefánsdóttur hjá Íslenska dansflokknum sorglegar. 7. mars 2014 11:05 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira
Fann strax fyrir mótlæti í dansflokknum Lára Stefánsdóttir segir tal um að hún misþyrmi dönsurum óvægið. 7. mars 2014 10:15
Lára hætt hjá Íslenska dansflokknum Átök hafa verið innan flokksins undanfarin misseri. 5. mars 2014 14:24
Segir dansara flokksins staðnaða í viðhorfum Stefán Baldursson, óperustjóri og fyrrum Þjóðleikhússstjóri, segir fréttir af starfslokum Láru Stefánsdóttur hjá Íslenska dansflokknum sorglegar. 7. mars 2014 11:05