Tillaga sjálfstæðismanna í skóla- og frístundaráði: Niðurstöður PISA-könnunar verði birtar Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 27. febrúar 2014 00:00 Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, vill að leynd verði aflétt af niðurstöðum PISA-könnunarinnar. Kjartan segir niðurstöðurnar á margan hátt merkilegar og að þær eigi ekki að vera einkamál kerfiskarlanna. Foreldrar og aðrir geti einnig dregið af þeim margvíslegan lærdóm. Í tillögu sem Kjartan lagði fram fyrir hönd sjálfstæðismanna á fundi skóla- og frístundaráðs í síðustu viku, en var ekki afgreidd, segir meðal annars: „Sundurgreindar upplýsingar um árangur hvers skóla í lesskilningi, náttúrufræðilæsi og stærðfræðilæsi, verði sendar viðkomandi skólastjórnendum, skólaráði og stjórn foreldrafélags í því skyni að hvetja til upplýstrar umræðu um kennsluhætti og námsárangur.“ Ásgeir Beinteinsson, skólastjóri Háteigsskóla, er þessu ósammála. „Ég hef látið í ljós þá skoðun mína í bréfi til yfirvalda. Við vitum að börn í ákveðnum skólum, þar sem félagsleg staða foreldra er verri en annars staðar, munu alltaf standa verr,“ segir Ásgeir. „Kerfiskarlarnir þurfa að vita það og beita sér í umbótum fyrir þessa ákveðnu skóla. Það væri sorglegt að birta slíkan samanburð.“ Ásgeir bendir á að unnt eigi að vera að finna leiðir til að birta opinberlega mat á einstökum skólum miðað við þær væntingar sem hægt er að gera til þeirra. „Öðruvísi samanburður þjónar engum tilgangi.“ Að sögn Ásgeirs eru til samanburðarupplýsingar um skólana, sem segi heilmikið um gæði þeirra, á vef skóla- og frístundasviðs.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum Sjá meira