Lífið

Föngulegar fyrirsætur á Reykjavík Fashion Festival

Marín Manda skrifar
Spennandi fyrirsætur
Spennandi fyrirsætur
Reykjavík Fashion Festival fer fram samhliða Hönnunarmars, dagana 27.-30. mars og er undirbúningurinn í fullum gangi. Í vikunni fór fram val (casting) á fyrirsætum fyrir tískusýningarnar og var mikil eftirvænting í loftinu. Lífið fékk að fylgjast með ferlinu hjá RFF en Andrea Brabin hafði yfirumsjón með valinu.

„Þetta eru sjö mismundandi hönnuðir og allir hafa mismunandi áherslur. Sumir eru að leita að kvenlegri týpum en aðrir strákatýpum. Ferlið hefur gengið vel og ég hugsa að það verði valin í kringum 40-50 módel frá mismunandi skrifstofum,“ segir Andrea Brabin, eigandi Eskimo Models.

Verið að taka málin á stelpunum.
Hæðin skiptir einnig máli í þessu ferli.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×