Niðurdæling brennisteinsvetnis að hefjast Stefán Árni Pálsson skrifar 2. apríl 2014 12:48 visir/valli
Á næstu dögum hefst niðurdæling brennisteinsvetnis, sem hreinsað hefur verið úr útblæstri Hellisheiðarvirkjunar en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. Tilraunarekstur hreinsistöðvar er hafinn og við það breytist tilhögun niðurrennslis vinnsluvatns frá virkjuninni og getur það valdið hreyfingu á jarðlögum. Orkuveita Reykjavíkur mun framvegis birta tilkynningar um slíkar breytingar, en þær geta aukið líkur á jarðskjálftum sem gætu fundist í byggð. Fram kemur í tilkynningunni að nú sé búið að ræsa hreinsistöð sem mun skilja brennisteinsvetni úr gufuútblæstri einnar af sex vélum Hellisheiðarvirkjunar. Þetta sé þróunar- og nýsköpunarverkefni sem miðar að því að draga úr lyktarmengun frá virkjuninni á sem umhverfisvænstan og hagkvæmastan hátt. Hreinsunarverkefnið byggist á niðurstöðum vísindarannsókna sem staðið hafa við virkjunina allt frá árinu 2007. Gangi rekstur stöðvarinnar eins og vænst er, verður hún stækkuð. Slík ákvörðun verður ekki tekin fyrr en að fenginni eins árs rekstrarreynslu. Þess vegna hefur Orkuveitan farið fram á undanþágu frá hertum ákvæðum reglugerðar um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti, sem ganga eiga í gildi í sumar. Reksturinn stenst núgildandi mörk í reglugerðinni.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Fleiri fréttir Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Sjá meira