Innlent

Veiðivörður ristarbrotnaði í sprungu sem hann varaði við sjálfur

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Vissara er fyrir veiðmenn að stíga gætilega til jarðar í hita leiksins ef bakkar eru grýttir eins og sums staðar við Elliðaárnar.
Vissara er fyrir veiðmenn að stíga gætilega til jarðar í hita leiksins ef bakkar eru grýttir eins og sums staðar við Elliðaárnar. Fréttablaðið/GVA
Fyrrverandi starfsmaður Orkuveitu Reykjavíkur á rétt á bótum frá tryggingafélagi fyrirtækisins vegna ristarbrots sem hann varð fyrir við að landa laxi í Elliðaánum.

Umræddur maður var í frítíma sínum við veiðar í ánum þegar slysið varð í júlí 2010. Hann setti í lax og var að þreyta hann þegar hann lenti með vinstri fótinn ofan í sprungu og rann 70 til 80 sentímetra ofan í hana.

„Hann kvaðst hafa séð þessa sprungu ári áður, er hann var veiðivörður við ána, en þá hefði maður fótbrotnað í henni. Hann hefði þá látið öryggisfulltrúa hjá Orkuveitunni vita af sprungunni,“ segir um vitnisburð mannsins fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Manninum, sem ristarbrotnaði illa og var óvinnufær í eitt ár, var sagt upp hjá Orkuveitunni ásamt mörgum öðrum í október 2010. Vátryggingafélag Íslands neitaði því að hann ætti bótarétt, meðal annars vegna þess að fallið sem leiddi til ristarbrotsins hafi ekki orðið vegna utanaðkomandi atburðar.

„Ætla verði að jafnvægismissinn megi rekja til hreyfinga stefnanda sjálfs og líkamsbeitingar hans er hann reyndi að landa fiskinum,“ segir í rökum VÍS sem héraðsdómur hafnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×