Innlent

Fluttu í hesthúsið

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Hjónin Sveinbjörrg og Heiðar una sér vel í Almannadal.
Hjónin Sveinbjörrg og Heiðar una sér vel í Almannadal.
Hjón á sjötugsaldri seldu í fyrra einbýlishús sitt í Grafarvogi og fluttu inn í hesthús í Almannadal. Þau segja fólk hafa farið framúr sér í góðærinu og byggt alltof stórt, en nú séu forsendurnar breyttar. 

Ráðist var í miklar framkvæmdir í Almannadal á árunum 2005-2007. Menn voru stórhuga og byggð voru nokkur tveggja hæða hesthús, þar sem rými sem hugsuð voru sem kaffistofur voru allt upp í 150 fermetrar.

Hjónin Sveinbjörg Gunnarsdóttir og Heiðar P. Breiðfjörð hafa nú búið í Almannadal í tæplega ár, en þegar hesthúsið var byggt var gert ráð fyrir rúmlega 80 fermetra kaffistofu á efri hæðinni. Þau innréttu hæðina eftir sínu höfði og útbjuggu sérinngang.

Hugsunarhátturinn var auðvitað ekki í lagi á þessum árum og flestir tóku þátt í því að einhverju leyti. Sumar kaffistofurnar voru á stærð við einbýlishús og það er alveg galið. Forsendurnar hafa breyst, þetta er meira en nógu stórt fyrir okkur svo við ákváðum bara að slá til og fluttum hingað. Það er alveg yndislegt að vera í svona mikilli nálægð við hestana og gott að þurfa ekki að keyra marga kílómetra fram og tilbaka á dag,“ segir Sveinbjörn.

Á neðri hæðinni hjá Sveinbjörgu og Heiðari er svo pláss fyrir tíu hesta. Þar er einnig hnakkageymsla, aðstaða fyrir heyrúllur og  lítil kaffistofa.

Fjórar fjölskyldur búa í hesthúsahverfinu. Búsetan er þó vandkvæðum háð þar sem byggðin er þó ekki formleg íbúðabyggð og því ekki hægt að eiga lögheimili þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×