Fluttu í hesthúsið Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 10. mars 2014 21:30 Hjónin Sveinbjörrg og Heiðar una sér vel í Almannadal.
Hjón á sjötugsaldri seldu í fyrra einbýlishús sitt í Grafarvogi og fluttu inn í hesthús í Almannadal. Þau segja fólk hafa farið framúr sér í góðærinu og byggt alltof stórt, en nú séu forsendurnar breyttar. Ráðist var í miklar framkvæmdir í Almannadal á árunum 2005-2007. Menn voru stórhuga og byggð voru nokkur tveggja hæða hesthús, þar sem rými sem hugsuð voru sem kaffistofur voru allt upp í 150 fermetrar. Hjónin Sveinbjörg Gunnarsdóttir og Heiðar P. Breiðfjörð hafa nú búið í Almannadal í tæplega ár, en þegar hesthúsið var byggt var gert ráð fyrir rúmlega 80 fermetra kaffistofu á efri hæðinni. Þau innréttu hæðina eftir sínu höfði og útbjuggu sérinngang.„Hugsunarhátturinn var auðvitað ekki í lagi á þessum árum og flestir tóku þátt í því að einhverju leyti. Sumar kaffistofurnar voru á stærð við einbýlishús og það er alveg galið. Forsendurnar hafa breyst, þetta er meira en nógu stórt fyrir okkur svo við ákváðum bara að slá til og fluttum hingað. Það er alveg yndislegt að vera í svona mikilli nálægð við hestana og gott að þurfa ekki að keyra marga kílómetra fram og tilbaka á dag,“ segir Sveinbjörn. Á neðri hæðinni hjá Sveinbjörgu og Heiðari er svo pláss fyrir tíu hesta. Þar er einnig hnakkageymsla, aðstaða fyrir heyrúllur og lítil kaffistofa. Fjórar fjölskyldur búa í hesthúsahverfinu. Búsetan er þó vandkvæðum háð þar sem byggðin er þó ekki formleg íbúðabyggð og því ekki hægt að eiga lögheimili þar.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira