Ekkert skipulagt málþóf hjá stjórnarandstöðunni Kjartan Atli Kjartansson skrifar 24. febrúar 2014 07:00 Ekkert skipulagt málþóf í pípunum hjá stjórnarandstæðingum.
Leiðtogar stjórnarandstöðuflokkanna hafa ekki í hyggju að beita skipulögðu málþófi þegar þingsályktunartillaga Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra verður rædd í þinginu. Í dag fer fram fyrri umræðan um tillöguna, sem felur í sér að draga aðildarumsókn Íslands í Evrópusambandið til baka. „Okkur þykir það ekki góð pólitík. En ég tel samt að málið verði mikið rætt. Ég hef fjölmargt að segja um þetta mál og vil nota tækifærið áður en menn taka Evrópusambandsaðild af dágskrá í kannski áratug,“ segir Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar.Birgtitta Jónsdóttir, kafteinn Pírata, segir hennar flokk hafa beðið eftir viðbrögðum Bjartrar framtíðar um hugsanlegt málþóf. „Við Píratar ákváðum að taka ekki þátt í skipulögðu málþófi, nema ef Björt framtíð tæki líka þátt. Við fögnum því að Björt framtíð ætli ekki að beita málþófi. Það hefði skotið skökku við ef við hefðum farið í þessar aðgerðir en Björt framtíð ekki, því Evrópusambandsaðildin er þeim mikilvægt,“ útskýrir Birgitta.Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna segir þingflokkinn ekki hafa beitt málþófi á þessum þingvetri og reiknar ekki með því að breyting verði á því, þegar þingsályktunartillagan verður rædd í þinginu.Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar leggur áherslu á að rætt verði um skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands áfram, en umræða um skýrsluna er einnig á dagskrá þingsins í dag. „Það er full ástæða til að ræða um þessa skýslu, sérstaklega í ljósi þess að menn eru að draga víðtækar og rangar ályktanir af henni,“ segir Árni Páll
Mest lesið Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Færeyingar vilja fullveldi Erlent Segir stefna í menningarslys á Birkimel Innlent Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Innlent Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax Erlent Trump fundar með þjóðaröryggisráði Erlent Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Innlent Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Innlent Skjálfti fannst í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Sjá meira