Kópavogur með minnstan kynbundinn launamun Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 28. febrúar 2014 13:52 Dregið hefur úr kynbundnum launamun hjá bænum frá því á árinu 2003 en þá var munurinn 4,7 prósent.
Kópavogsbær er með minnstan kynbundinn launamun sé tekið mið af stærstu sveitarfélögum landsins. Kynbundinn munur á heildarlaunum hjá Kópavogsbæ er 3,25 prósent körlum í vil. Þetta er niðurstaða skýrslu um rannsókn á samanburði á launum karla og kvenna hjá Kópavogsbæ í apríl 2013. Niðurstaðan var kynnt á fundi bæjarráðs í gær. Dregið hefur úr kynbundnum launamun hjá bænum frá því á árinu 2003 en þá var munurinn 4,7 prósent. Launamunur í Reykjavík er 5,8 prósent, 6,1 prósent í Hafnarfirði og 3,9 prósent á Akureyri. Tekið er fram að í útreikningum Kópavogsbæjar var ekki mögulegt að taka tillit til menntunar og starfsaldurs. Fram kemur að miklar líkur eru á því að óútskýrður launamunur kynjanna hjá bænum myndi mælast enn minni ef þær breytur væru teknar með.Frekari áætlanir um að útrýma kynbundnum launamunÁ fundi bæjarráðs í gær var lögð fram áætlun um frekari aðgerðir til að útrýma kynbundnum launamun með öllu. Í áætluninni er meðal annars lagt til að stjórnendur hljóti fræðslu um verklag við launasetningu og mikilvægi þess að jafnlaunasjónarmið séu ávallt höfð að leiðarljót. Sömuleiðis að stjórnendum verði falið að endurskoða samninga um fastar yfirvinnugreiðslur með það að markmiði að leiðrétta kynbundinn launamun, komi hann í ljós. Samhliða verði skoðað hvort innleiða eigi jafnlaunastaðal hjá Kópavogsbæ. Í frétt Kópavogsbæjar um skýrsluna segir að það sé skýr stefna bæjarins að vinna gegn kynbundnum launamun. Rannsóknin sé tæki í þeirri vinnu sem og þær aðgerðir sem kynntar voru á fundi bæjarráðs. Til stendur að gera aðra launakönnun fyrir árslok 2015.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira