Bækur fyrir málhömluð börn: "Þau eiga engan samastað í heilbrigðiskerfinu" Hrund Þórsdóttir skrifar 28. febrúar 2014 20:00
Hanna Kristín Skaftadóttir hefur ásamt barnsföður sínum búið til fjórar bækur fyrir börn með tal- og málþroskaraskanir undir nafninu MiMi Creations. „Við eigum lítinn dreng, Mikael Björn, sem verður fjögurra ára í sumar og hann er verulega málhamlaður. Við vorum á leið utan í ferðalag og fundum út að það væru engar bækur til á markaðnum sem voru að notast við Tákn með tali, svo við gengum bara í verkið sjálf,“ segir Hanna Kristín. Tákn með tali byggir á einföldum hreyfitáknum sem notuð eru á markvissan hátt til stuðnings töluðu máli. Hanna segir bækurnar gagnast öllum börnum en helst þeim sem glími við málhamlanir auk tvítyngdra barna og barna með downs heilkenni. Og hefur þetta efni nýst Mikael Birni? „Mjög vel. Við byrjuðum sjálf að teikna myndir handa honum og út frá því kom hugmyndin að gera bókina. Við áttum myndirnar, það vantaði bækur og við bara smelltum þessu saman og létum af þessu verða,“ segir hún og í meðfylgjandi myndskeiði má sjá þau mæðginin beita tækninni. Söguhetjan MiMi heitir í höfuðið á Mikael, sem kallar sig sjálfur því nafni. Bækurnar um MiMi eru væntanlegar í bókabúðir og app er í smíðum. „Rafbókin er komin út og er inni á emma.is og við erum bara að vinna í að færa hann til lífs, hann MiMi.“ Eins og við höfum greint frá hafa um 500 börn verið á biðlista eftir talþjálfun á Íslandi og Hanna segir stöðu þeirra slæma. „Það vantar mikið upp á og þau eiga í raun og veru engan samastað í heilbrigðiskerfinu yfir höfuð, því miður,“ segir Hanna Kristín að lokum.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira