"Ekki vildi ég vera í framboði fyrir þessa flokka í sveitarstjórnarkosningunum" Höskuldur Kári Schram skrifar 28. febrúar 2014 13:12 Gunnar Helgi Kristinsson prófessor í stjórnmálafræði við HÍ.
Gunnar Helgi Kristinsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sýna að stefna ríkisstjórnarinnar um að slíta aðildarviðræðum við ESB án þjóðaratkvæðagreiðslu njóti næstum því einskis stuðnings meðal kjósenda. Um 82 prósent þjóðarinnar vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna samkvæmt könnun stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Einungis 18,4 prósent eru á móti. Stuðningur við þjóðaratkvæðagreiðslu eykst á milli kannana en í janúar sögðust 74,6 prósent vilja að þjóðaratkvæðagreiðslu. Meirihluti kjósenda Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu eða 51 prósent kjósenda Framsóknarflokks og rúmlega 66 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokks. „Ég held að það þurfi að hafa í huga að stuðningurinn var mjög mikill fyrir. Um 75 prósent kjósenda vildu þjóðaratkvæðagreiðslu núna í janúar. Stuðningurinn eykst upp í 82 prósent sem er auðvitað aukning en málið var fyrir með mjög eindreginn stuðning. Þessi aukning er sennilega tilkomin vegna þess að þessi leikur ríkisstjórnarinnar að reyna flýta málinu til að fá það úr sögunni hefur, í bili, ekki tekist vel. Kjósendur hafa brugðist illa við þannig að sú lína sem ríkisstjórnin hefur í málinu hún nýtur næstum því einskis stuðnings meðal kjósenda,“ segir Gunnar Helgi. Nokkrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar lýstu því yfir fyrir síðustu kosningar að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla á kjörtímabilinu um framhald aðildarviðræðna. Nú hafa þeir hins vegar skipt um skoðun. Gunnar segir að þetta geti reynst flokkunum erfitt í sveitarstjórnarkosningunum í vor. „Ekki vildi ég vera í framboði fyrir þessa flokka í sveitarstjórnarkosningunum og þurfa að segja við kjósendur að loforð sem væru gefin í kosningabaráttu væru eiginlega bara sett fram fyrir kosningar og hefðu ekkert sérstakt gildi eftir kosningar. Ég held að staðan verði mjög erfið fyrir flokkana í næstu sveitarstjórnarkosningum,“ segir Gunnar Helgi.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum Sjá meira