Hundurinn Hunter leitaði í selshræ Jakob Bjarnar skrifar 19. júní 2014 07:45 Hunter var orðinn svangur, sótti í selshræ og það varð til þess að hann fannst loks.
Hundurinn Hunter fannst loks í gærkvöldi eftir að áköf leit hafði staðið yfir í tæpa viku. Hunter var kominn út í hólma við Þórshöfn í Ósabotnum, sem er einum tíu kílómetrum frá Leifsstöð. Óð eigandi Hunters, Katarina Reinhall, sænsk kona, sjálf út í hólmann til að sækja hundinn. Þegar Reinhall hafði loks náð að lokka hundinn til sín urðu miklir fagnaðarfundir, að sögn Ingólfs E. Sigurjónssonar, en hann er frá svæðisstjórn björgunarsveita á svæði 2 og fór með stjórnun leitaraðgerða. Hundurinn var orðinn vel svangur, og það var í raun það sem lokum leiddi til þess að hann fannst.Katariona Reinhall og Hunter í fjöruborðinu skömmu eftir fundinn.Oddur Jónsson / Björgunarsveitin Ægir, GarðiSótti í selshræ úti í hólma „Ástæðan fyrir því að farið var út í þennan hólma er sú að okkur hafði borist ábending um að þar væri selshræ þarna í fjörunni,“ segir Ingólfur. „Maður hafði hringt inn fyrr um daginn og taldi sig hafa séð spor við hræið. Það var svo kannað nánar. Eigandinn fór út í hólmann og telur sig kannast við þessi spor. Og stuttu síðar verður hún hans vör þarna úti í hólmanum.“ Þrátt fyrir að eigandinn væri kominn út í hólmann, en þangað hafði Reinhall vaðið upp að mitti náði hún ekki að kalla hann til sín í fyrstu. „Það tók hana langan tíma að sannfæra hundinn um það að í lagi væri að koma úr felum. En það urðu miklir fagnaðarfundir þegar hann áttaði sig á því hver var kominn til að sækja hann,“ segir Ingólfur. Hér getur að líta myndskeið sem tíðindamaður Víkurfrétta náði skömmu eftir að hundurinn fannst. Enginn undankomuleið var fyrir Hunter þegar út í hólmann var komið og björgunarsveitarfólk og leitarfólk raðaði sér í fjöruna, og hefði hann náðst í fjöruborðinu ef hann hefði flúið. Eigandinn náði hins vegar að róa hundinn.Björgunarsveitarmenn ásamt Reinhall vaða með Hunter úr hólmanum.ODDUR JÓNSSON / BJÖRGUNARSVEITIN ÆGIR, GARÐITýndur í tæpa viku Hunter slapp úr búri sínu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á föstudaginn. Árni Stefán Árnason lögfræðingur fór fyrir hópi sjálfboðaliða og hann hefur gagnrýnt opinbera aðila, svo sem Matvælastofnun, harðlega og segir leitina af þeirra hálfu hafa verið fumkennda og stjórnlausa. Samkvæmt Tollgæslu stendur til að senda hundinn út strax í dag eftir að tekið hefur verið úr honum sýni, en strangar reglur gilda um innflutning hunda vegna ýmiskonar smithættu. Árni Stefán segir eigandann ósáttan við hvernig staðið hefur verið að málum af hálfu Icelandair, fyrir það fyrsta að hafa misst hundinn úr greipum sínum og svo með leitina sjálfa. Hún hafði heitið 200 þúsund krónum í fundarlaun. Þau verða ekki greidd út þar sem Reinhall fangaði Hunter sjálf. Fólk veltir því vitaskuld fyrir sér hvernig það má vera að hundurinn hafi ekki fundist í allan þennan tíma, en Border Collie eru ekki smáhundar, heldur fjárhundar - en það þýðir reyndar að það er talsverð yfirferð á þeim og Ingólfur segir Hunter þannig á lit að hann falli afskaplega vel inn í landslagið og hraunið. Og það sem meira er, leitarsvæðið er miklu umfangsmeira en menn almennt gera sér grein fyrir.Gagnrýni vísað á bug Ingólfur gefur ekki mikið fyrir gagnrýni Árna Stefáns. Hann segir að björgunarsveitirnar hafi verið í stöðugu sambandi við Katarinu Reinhall og alltaf þegar ábendingar bárust var hún kölluð til og fengin til að athuga hvort um Hunter gæti verið að ræða. Ingólfur segir þvert á móti að Reinhall vilji koma á framfæri miklum þökkum til leitarfólks alls. Reinhall var í sömu flugvél og Hunter og sá þegar búr hans opnaðist við að falla af færibandi. Hún var því viðstödd leitina allt frá upphafi.Ingólfur E. Sigurjónsson stjórnaði leitinni af hálfu björgunarsveitanna.Þá segir Ingólfur vert að hafa í huga að björgunarsveitirnar hafa ekki getað kallað út allan sinn mannskap vegna umfangsmikillar leitar sem staðið hefur yfir austur í Fljótsdal, að Ástu Stefánsdóttur. „Við höfum verið ragir við að kalla út mikinn mannskap, því mikið álag hefur verið á okkar mannskap undanfarna daga og vikur. En, við reyndum eins og við gátum.“Árni Stefán hefur gagnrýnt harðlega opinbera aðila. Var leitin svona óskipulögð?„Við viljum ekki meina það. Við höfum reynt allt sem við höfum getað. Samstarf lögreglu og björgunarsveita hefur verið til mikillar fyrirmyndar og við höfum fengið alla þá aðstoð frá matvælastofnun sem við höfum óskað eftir,“ segir Ingólfur.
Tengdar fréttir Tveir flugmiðar í fundarlaun Hundurinn Hunter strauk úr búri sínu á Keflavíkurflugvelli. 13. júní 2014 17:59 Hunter fékk loksins að borða | Myndband "Hann haltrar aðeins. Það er allt og sumt,“ sagði hin sænska Katarina Reinhall eftir að hundurinn hennar Hunter fannst í hólma við Þórshöfn í Ósabotnum í kvöld. 19. júní 2014 00:35 Hunter fundinn Hunters var leitað vel og lengi en hann fannst í kvöld við Gálgaklett á Hvalsnesi eftir ábendingu sem barst leitarhópnum fyrr í dag. 18. júní 2014 21:48 Dularfulla hundshvarfið á Miðnesheiði Border Collie-hundurinn Hunter er enn ófundinn. Dýravinurinn Árni Stefán Árnason segir hundinn óttast svarklædda menn. 16. júní 2014 07:44 „Fumkennd vinnubrögð“ í máli Hunters Eigandi hundsins, sem fannst fyrr í kvöld, bíður þess nú að vita hver næstu skref í málinu verða. 18. júní 2014 23:15 Hunter líklega hræddur og svangur Líklegt er að hann leiti í mannabústaði að mat og hlýrri hönd. 16. júní 2014 11:36 "Leitin algjörlega stjórnlaus“ Hvorki tangur né tetur hefur fundist af hundinum Hunter sem slapp úr búri sínu á föstudaginn þrettánda júní síðastliðinn á Keflavíkurflugvelli. 18. júní 2014 10:50 Eigandinn býður 200 þúsund krónur í fundarlaun Icelandair hefur áður boðið þeim sem hefur hendur í hári Hunters tvo flugmiða en leitin hefur enn engan árangur borið. 15. júní 2014 11:43 Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira
Tveir flugmiðar í fundarlaun Hundurinn Hunter strauk úr búri sínu á Keflavíkurflugvelli. 13. júní 2014 17:59
Hunter fékk loksins að borða | Myndband "Hann haltrar aðeins. Það er allt og sumt,“ sagði hin sænska Katarina Reinhall eftir að hundurinn hennar Hunter fannst í hólma við Þórshöfn í Ósabotnum í kvöld. 19. júní 2014 00:35
Hunter fundinn Hunters var leitað vel og lengi en hann fannst í kvöld við Gálgaklett á Hvalsnesi eftir ábendingu sem barst leitarhópnum fyrr í dag. 18. júní 2014 21:48
Dularfulla hundshvarfið á Miðnesheiði Border Collie-hundurinn Hunter er enn ófundinn. Dýravinurinn Árni Stefán Árnason segir hundinn óttast svarklædda menn. 16. júní 2014 07:44
„Fumkennd vinnubrögð“ í máli Hunters Eigandi hundsins, sem fannst fyrr í kvöld, bíður þess nú að vita hver næstu skref í málinu verða. 18. júní 2014 23:15
Hunter líklega hræddur og svangur Líklegt er að hann leiti í mannabústaði að mat og hlýrri hönd. 16. júní 2014 11:36
"Leitin algjörlega stjórnlaus“ Hvorki tangur né tetur hefur fundist af hundinum Hunter sem slapp úr búri sínu á föstudaginn þrettánda júní síðastliðinn á Keflavíkurflugvelli. 18. júní 2014 10:50
Eigandinn býður 200 þúsund krónur í fundarlaun Icelandair hefur áður boðið þeim sem hefur hendur í hári Hunters tvo flugmiða en leitin hefur enn engan árangur borið. 15. júní 2014 11:43