Nýsköpunarborgir Óli Örn Eiríksson skrifar 5. febrúar 2014 10:18 Gjaldþrot Detroit-borgar komst í fréttirnar á síðasta ári og vakti athygli á mikilli hnignun borgarinnar. Detroit er gott dæmi um borg sem byggðist upp í kringum framleiðslu. Þessar borgir voru á síðustu öld ríkustu borgir Bandaríkjanna og miklar nýsköpunar- og hagvaxtarvélar. Hnignun þeirra hefst upp úr 1980 þegar eigendur framleiðslufyrirtækjanna hófu að flytja starfsemi sína til svæða með lægri laun víða um heim. Störfum í borginni fækkaði hratt og upp frá því myndaðist vítahringur fólksfækkunar og versnandi efnahags.Bilið að breikka Saga Detroit er gott dæmi um sögu framleiðsluborga Bandaríkjanna en á undanförnum 30 árum virðast bandarískar borgir hafa þróast upp í þrjá mismunandi flokka: hratt vaxandi þekkingarborgir, hnignandi framleiðsluborgir og loks borgirnar sem vega salt í miðjunni og óvíst í hvorn flokkinn munu lenda. Bilið á milli þessara borga og sú staðreynd að það virðist vera að breikka frekar en að dragast saman er efni bókarinnar „The geography of jobs“ eftir Enrico Moretti. Í bókinni rannsakar höfundur 320 atvinnusvæði í Bandaríkjunum og kemst að þeirri niðurstöðu að 20 svæði eru að stinga restina af landinu af. Þetta eru nýsköpunarborgirnar.Stigvaxandi samþjöppun Í öllum borgum eru tveir atvinnumarkaðir: staðbundin þjónusta og útflutningur. Við staðbundna þjónustu vinna bæði háskólamenntaðir (kennarar, læknar, fjármálaráðgjafar) og fólk með minni menntun (þjónar, leigubílstjórar, hárgreiðslumenn). Stærstur hluti íbúanna vinnur við þjónustugeirann. Það er hin hliðin, útflutningurinn, sem skapar tekjur til þess að greiða laun starfsmanna í þjónustunni. Borgir sem hafa byggt upp sterka klasa af þekkingarfyrirtækjum í útflutningi hafa á undanförnum árum tekið afgerandi fram úr öðrum svæðum með tilliti til launa, menntunarstigs og lífsgæða. Þessi stigvaxandi samþjöppun vekur spurninguna af hverju þekkingarfyrirtæki flytja ekki starfsemi sína í ódýrari borgir og nýta sér lægri húsaleigu og launakostnað sem samkeppnisforskot? Ástæðan er sú að þekkingarstarfsemi byggist ekki eingöngu á þeirri þekkingu sem býr inni í hverju fyrirtæki heldur byggist hún að einhverju leyti á þeirri þekkingu sem „liggur í loftinu“. Þekking í öðrum fyrirtækjum, innan háskólanna og í stoðþjónustu mynda saman eitt nýsköpunarhagkerfi. Það er þetta sameiginlega nýsköpunarhagkerfi sem dregur til sín þekkingarfyrirtæki og þekkingarstarfsmenn. Eftir því sem þeim fjölgar þeim mun meira spennandi verður borgin fyrir báða aðila.Hvar stendur Reykjavík? Þekkingarborgir bjóða ekki bara þekkingarstarfsmönnum há laun. Moretti bendir á að fólk sem hefur ekki lokið háskólaprófi og vinnur í nýsköpunarborgunum hefur mun hærri laun en samanburðarhópur í framleiðsluborgum. Munurinn er svo mikill að í sumum tilfellum eru ómenntaðir íbúar nýsköpunarborga komnir með hærri tekjur en háskólamenntaðir íbúar framleiðsluborga. Á Íslandi er það vel þekkt að íbúar á landsbyggðinni hafa minni menntun og þeim bjóðast fábreyttari störf en íbúum á höfuðborgarsvæðinu. Enn skortir þó á að hugsa um höfuðborgarsvæðið út frá öðrum borgum í heiminum. Hvar stendur Reykjavík í alþjóðlegum samanburði? Er nýsköpunarkerfi borgarinnar nægilega öflugt til þess að keyra áfram hagvöxt framtíðarinnar? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir Skoðun Partí í Dúfnahólum 10 Þórlindur Kjartansson Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Skoðun Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson Skoðun
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson Skoðun