Kveikt í sólpalli við íbúðarhús í tvígang Svavar Hávarðsson skrifar 22. apríl 2014 12:59 Vegfarendur náðu að slökkva eldinn stuttu eftir að hann var kveiktur og eru skemmdir því ekki miklar. Fréttablaðið/Óskar „
Þetta er mjög óhugnanlegt og við fjölskyldan vitum ekkert hvað er þarna á ferðinni. Þetta er svo ótrúlegt að maður er eiginlega orðlaus,“ segir Davíð Guðmundsson rafmagnsverkfræðingur. Tvær helgar í röð hefur eldur verið lagður að sólpalli við íbúðarhús hans við Hásteinsveg. Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur engan grunaðan um íkveikjurnar. Rannsókn málsins hefst í dag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum, en atvikið er litið mjög alvarlegum augum enda er þetta önnur helgin í röð sem kveikt er í við húsið. Ennþá liggja engar upplýsingar fyrir um hver eða hverjir geta verið á ferðinni en lögregla bindur vonir við að um óvitaskap sé að ræða og málið risti ekki dýpra en það. Boð frá Neyðarlínunni barst rétt fyrir miðnætti á páskadag, en slökkviliði var snúið frá stuttu síðar. Ástæðan var sú að fjórir ungir menn sem áttu leið um Hásteinsveg urðu varir við eldinn og notuðu meðal annars hjólbörur við að slökkva hann. Davíð segir að íkveikjurnar hafi ekki átt sér neinn aðdraganda; engar hótanir eða annað hafi borist íbúum hússins. „Maður þekkir enga óvildarmenn hérna, enda er þetta lítið bæjarfélag. En þetta er sláandi og lítið þarf að gerast þegar eldur er lagður að trépalli til að þetta verði mjög alvarlegt,“ segir Davíð en börnin hans tvö voru ein heima á efri hæð hússins þegar eldur var lagður að pallinum um helgina, auk íbúa í kjallara. „Þau eru mjög slegin yfir þessu, eins og skiljanlegt er,“ segir hann. Þegar spurt er hvort lögregla setji þessi atvik í samhengi við fjölda bruna í Vestmannaeyjum á undanförnum árum, en uppi er grunur um að brennuvargur gangi þar laus, er svarið að þessi tilteknu atvik hafi ekki verið sett í neitt slíkt samhengi. Sjálfur dregur Davíð það einnig í efa að brunar undanfarinna ára og íkveikjurnar við heimili hans séu á einhvern hátt tengdar, enda hafi nefndir brunar allir verið í atvinnuhúsnæði í Vestmannaeyjum.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sjá meira