Upprifjun: Tvær markasúpur Keflavíkur og FH í Krikanum | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. maí 2014 12:00 Björn Daníel Sverrisson þrumar að marki en Bjarni Hólm er til varnar. vísir/anton
Keflavík tekur á móti FH klukkan 20.00 í 5. umferð Pepsi-deild karla í fótbolta í kvöld en leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Honum, sem og öllum sex leikjum kvöldsins, verða svo gerð skil í Pepsi-mörkunum klukkan 22.00. Keflavík hefur ekki unnið FH í deildinni í síðustu níu leikjum en FH-ingar hafa unnið síðustu fimm leiki liðanna í Pepsi-deildinni. Síðast vann Keflavík FH í deildarleik í fyrstu umferðinni 2009. Liðin voru þá að mætast í fyrsta skipti eftir ótrúlega lokaumferð árið áður þar sem Keflavík kastaði frá sér Íslandsmeistaratitlinum með tapi gegn Fram á heimavelli á sama tíma og FH vann Fylki í Árbænum. Keflavík vann þann leik, 1-0, með marki Hólmars Arnar Rúnarssonar, sem nú leikur með FH, en Davíð Þór Viðarsson var rekinn af velli strax á 19. mínútu leiksins. Keflavík vann FH aftur, 3-1, í bikarnum sama ár en hefur síðan ekki tekist að vinna Hafnafjarðarliðið.Ólafur Páll Snorrason með boltann en Guðmundur Steinarsson fylgir honum hvert fótmál.vísir/antonLiðin skildu jöfn, 2-2, í fjörugum leik í Kaplakrika þetta sama sumar árið 2009 en myndband af þeim leik með lýsingu Guðjóns Guðmundssonar og Leifs Sigfinns Garðarssonar má sjá neðst í fréttinni.Guðjón Árni Antoníusson, fyrirliði FH, kom uppeldisfélagi sínu Keflavík yfir í leiknum á 42. mínútu áður en Davíð Þór Viðarsson og Atli Guðnason skoruðu sitthvort markið með skalla eftir hornspyrnur Tryggva Guðmundssonar, 2-1. Heimamenn höfðu þó ekki sigur að þessu sinni því Magnús Sverrir Þorsteinsson jafnaði leikinn fyrir Keflavík á 90. mínútu eftir laglegan undirbúning Færeyingsins Símuns Samuelsens. Þrír verðandi FH-ingar: Guðjón Árni, Hólmar Örn Rúnarsson og AlenSutej, voru allir í liði Keflavíkur í leiknum en í liði FH var t.a.m. Valsarinn Matthías Guðmundsson. Hann fiskaði vítaspyrnu sem nafna hans, Matthías Vilhjálmsson, tókst ekki að skora úr. Til að hita enn frekar upp fyrir leikinn í kvöld fylgir einnig myndband af átta marka veislu liðanna í Krikanum frá árinu 2010. Þann leik vann FH, 5-3.Atli Viðar Björnsson og BjörnDaníelSverrisson skoruðu báðir tvívegis fyrir FH í leiknum en Haukur Ingi Guðnason, núverandi aðstoðarþjálfari Fylkis, BjarniHólmAðalsteinsson, sem er án félags í dag, og Brynjar Örn Guðmundsson skoruðu mörk Keflavíkur.FH - Keflavík 2-2 (2009) FH - Keflavík 5-3 (2010)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira