Óttast stjórn Rússa yfir Svarta hafinu Samúel Karl Ólason skrifar 26. nóvember 2014 16:53 Hershöfðinginn Philip Breedlove Vísir/AFP
Æðsti yfirmaður herafla NATO segir að aukin viðvera herafla Rússlands á Krímskaga gæti leitt til þess að Rússar muni stjórna Svarta hafinu að fullu. Hershöfðinginn Philip Breedlove hélt þessu fram í Kænugarði í dag, þar sem hann fundaði með leiðtogum Úkraínu. Varnarmálaráðuneyti Rússlands tilkynnti í dag að 14 orrustuþotur hafi verið sendar til Krímskaga og að seinna meir verði ávallt 30 slíkar þotur þar. Þetta kemur fram á vef BBC. Breedlove sagði í gær að fjöldi rússneskra hermanna væri nú í austurhluta Úkraínu, þar sem þeir væru að þjálfa og aðstoða aðskilnaðarsinna. Yfirvöld í Moskvu hafa ávallt þvertekið fyrir að hafa tekið beinan þátt í átökunum í Úkraínu, en rúmlega fjögur þúsund og þrjú hundruð einstaklingar hafa fallið síðan í apríl. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sakaði Rússa í dag um að brjóta gegn alþjóðalögum með aðgerðum sínum í Úkraínu og á Krímskaga. Hún sagði að varanlegt vopnahlé í landinu væri hæpið og að frekari viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi væri óhjákvæmilegar.
Mest lesið Átök á aðalfundi og lögregla kölluð til Innlent Segir samstarfsfólk Katrínar hafa hvatt sig til að draga sig úr leik Innlent De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið Erlent „Er búinn að blokka 237 manneskjur á tíu dögum“ Innlent „Fyrirvarinn var í rauninni enginn“ Innlent Sindri Freyr er látinn Innlent Undir yfirborði kosningabaráttunnar kraumi svæsinn slagur Innlent Fyrstu tölur frá Reykjavík ættu að gefa góða mynd af úrslitum Innlent Öllu tjaldað til við opnun nýrra undirganga Innlent Katrín græði stórum á vangetu kjósenda til að kjósa taktískt Innlent Fleiri fréttir De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Notaði niðrandi orð um samkynhneigða karla á lokuðum fundi Trump lofar að útrýma mótmælum til stuðnings Palestínu Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“ Segja Frakka ætla að senda hermenn til Úkraínu Sautján ára „hermaður Hitlers” dæmdur í sjö ára fangelsi Töldu að enginn ætti að deyja í árásunum AfD náði ekki að sigra eftir hrinu hneykslismála Óttast að um 2.000 hafi látist í aurskriðum á föstudag Alríkislögreglan aðstoðar við leit að munum úr British Museum Átján látnir eftir mikið óveður í miðríkjum Bandaríkjanna Hart sótt að Sunak vegna hugmynda um herþjónustu fyrir 18 ára Hryllingur í Rafah eftir hefndaraðgerðir Átta á sjúkrahúsi eftir mikla ókyrrð 700 talin af vegna aurskriðu í Papúa Nýju-Gíneu Hamas skaut eldflaugum í átt að Tel Aviv Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom Tólf látin og tugir særð eftir árás á byggingavöruverslun Fjölda saknað eftir loftárás á byggingavöruverslun Halda áfram árásum á Rafah Hafnaði beiðni Baldwin um frávísun „Við munum vinna þennan slag“ Vilja banna snjallsíma fyrir yngri en 16 ára Sjá meira
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins