Lífið

Bjargaði lífi Meryl Streep

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Emily Blunt var gestur í spjallþætti Davids Letterman í gærkvöldi þar sem hún talaði um lífið á tökustað söngleiksins Into the Woods.

Hún segist hafa bjargað meðleikkonu sinni Meryl Streep frá alvarlegum meiðslum.

„Meryl Streep festi fót sinn í slánni sinni og við horfðum á hana hrasa rólega og virtist hún ætla að lenda með andlitið á malbikinu,“ segir Emily en Meryl leikur norn í söngleiknum.

Emily segir að leikstjóri myndarinnar, Rob Marshall, og meðleikari hennar, James Corden, hafi báðir fylgst með en ekki brugðist við. Emily gerði það hins vegar þó að hún hafi verið ólétt.

„Já, ég bjargaði lífi hennar,“ segir hún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×