Innlent

Trilla dregin til hafnar snemma í morgun

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. VÍSIR/GVA
Trilla sem fékk flottein af neti í skrúfuna um 1,2 sjómílur vestur af Sandgerði í snemma í morgun var dregin til hafnar. Kallað var eftir björgum rétt fyrir klukkan sex í morgun.

Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein var kallað út frá Sandgerði. Flotteinninn var klipptur úr. Trillan var komin til hafnar rétt fyrir klukkan átta. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×