Ólíklegt að flokkurinn fái hljómgrunn Freyr Bjarnason skrifar 6. maí 2014 07:00 Enginn hefð er fyrir pólitísku, kristilegu starfi á Íslandi eins og í nágrannalöndunum. Fréttablaðið/GVA
Einhverjar tilraunir hafa verið gerðar með framboð kristilegra flokka á Íslandi en þær hafa ekki gengið vel, að sögn Gunnars Helga Kristinssonar, prófessors í stjórnmálafræði við HÍ. Kristileg stjórnmálasamtök hafa verið stofnuð og hyggjast þau bjóða fram í Alþingiskosningum árið 2017 og í sveitarstjórnarkosningum ári síðar. Samtökin hafna hjónavígslu samkynhneiðra í kristnum kirkjum, vilja banna fóstureyðingar og eru á móti útgjöldum ríkisins vegna kynleiðréttinga. Gunnar Helgi segir að samskonar flokkar byggðir á trúarhreyfingum hafi starfað í nágrannalöndum okkar, þar sem bann gegn fóstureyðingum, hafa m.a. verið á stefnuskránni. „Það er ákveðinn hópur kjósenda í kringum svona safnaðarstarf sem er fyrir utan meginstrauminn. Það gæti auðvitað verið einhver hljómgrunnur fyrir svona flokki í því starfi, sérstaklega með aðgangi að virkum félögum, en miðað við fyrri reynslu er það ekki mikill hljómgrunnur,“ segir Gunnar Helgi, aðspurður. Hann bætir við að flokkurinn virðist vera mjög eindreginn í stefnumálum sínum. „Þessir flokkar eins og í Noregi og Svíþjóð byggja á mjög gömlum grunni, safnaðarstarfi í fríkirkjulegum hreyfingum eða í leikmannahreyfinum sem á sér rætur alveg aftur á 19. öld og hafa forverar þeirra verið lifandi hluti af pólitísku lífi í þeim löndum í mjög langan tíma,“ segir Gunnar Helgi. „Það er enginn hefð fyrir svona pólitísku, kristilegu starfi á Íslandi sem ég kannast við, þannig að þetta er meira utan við meginstrauminn á Íslandi. Það er því líklegt að það hafi ekki enn slípast af því ýmsir, kannski öfgakenndari kantar.“ Spurður hvort flokkurinn sé mögulega tímaskekkja, miðað við eindregin stefnumál sín, segist hann búast við því að langflestum kjósendum finnist það. „En það eru til kjósendur sem þetta höfðar til og það er engin mæling á því hversu mikinn hljómgrunn þetta fær fyrr en við höfum einhverjar kannanir. En mér finnst allar líkur á því að það sé ekki mikill grundvöllur fyrir þessu.“Viðbrögð við afhelgun samfélagsins Að sögn Gunnars Helga hafa kristilegir flokkar í Svíþjóð og Noregi verið litlir þó svo að til dæmis Kjell Magne Bondevig úr kristilega demókrataflokknum hafi orðið forsætisráðherra Noregs. „Þessir flokkar hafa orðið til sem viðbrögð við afhelgun samfélagsins, sem varð áberandi á milli 1960 og 1970. Þeir höfða til fólks sem vill hafa trúarleg gildi í meiri hávegum heldur en kannski samfélagið gerir yfirleitt. Það saknar þessara eldri tíma þar sem kirkja var meiri hluti af daglegu lífi fólks og berst gegn hlutum eins og fóstureyðingum,“ segir Gunnar Helgi. „En það er engin hefð fyrir því að þetta sé neitt átakamál á Íslandi, ekki í hinu stóra samhengi. Það er langsamlega líklegt að þetta nái ekki miklum hljómgrunni en maður veit auðvitað aldrei.“
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sjá meira