Mörkin sem telja lítið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. ágúst 2014 16:00 Jóhann Helgi Hannesson og félagar hans mæta Stjörnunni í kvöld. Vísir/Daníel
Þór sækir Stjörnuna heim í 15. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Þór og Stjarnan eru í ansi ólíkri stöðu. Stjörnumönnum hefur gengið flest í haginn á tímabilinu. Þeir eru ósigraðir í forkeppni Evrópudeildarinnar og Pepsi-deildinni og geta með sigri í kvöld jafnað FH að stigum á toppi deildarinnar. Þór er hins vegar í afar erfiðum málum. Eftir tapið gegn Fram í síðustu umferð sitja Þórsarar einir og yfirgefnir á botni deildarinnar, með aðeins níu stig eftir 14 leiki. Þeir eru sem stendur fimm stigum frá fallsæti og tap í kvöld setur þá í enn erfiðari stöðu. Akureyringar hafa skorað 19 mörk í deildinni - jafnmörg og Víkingur sem situr í þriðja sæti - en vandamálið er að mörkin sem þeir hafa skorað telja mörg hver lítið sem ekki neitt. Hvert mark hjá Þór telur aðeins til 0,47 stiga, samanborið við 1,37 hjá Víkingi og 1,21 hjá Stjörnunni. Sjö af 19 mörkum Þórs hafa komið í sigurleikjum, tvö í jafnteflisleikjum og tíu í tapleikjum. Þórsarar hafa fengið á sig fyrsta markið í 11 af 14 leikjum sínum í deildinni og af þessum 11 leikjum hafa þeir tapað níu. Þórsarar hafa aðeins fengið tvö stig úr tapstöðum í sumar; gegn ÍBV á heimavelli og FH á útivelli, en þeir gerðu 1-1 jafntefli í báðum leikjunum. Níu af 19 mörkum Þórs hafa komið þegar liðið er tveimur eða fleiri mörkum undir. Þrjú af fimm mörkum Jóhanns Helga Hannessonar hafa t.a.m. komið í slíkri stöðu, tvö af þremur mörkum Ármanns Péturs Ævarssonar og bæði mörk Þórðar Birgissonar. Þórsarar hafa aðeins tvisvar sinnum skorað fyrsta markið í leikjum sumarsins, og þeir unnið í bæði skiptin sem það hefur gerst; 5-2 gegn Fylki og 2-0 gegn KR.Leikur Stjörnunnar og Þórs hefst klukkan 20:00 í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Eftir leikinn verður svo 15. umferðin gerð upp í Pepsi-mörkunum sem hefjast klukkan 22:00.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Þór - Fram 0-2 | Guðmundur Steinn með tvö Framarar enduðu fimm leikja taphrinu sína í Pepsi-deild karla í kvöld með því að sækja þrjú stig norður eftir 2-0 sigur á Þórsurum í 14. umferð deildarinnar. Guðmundur Steinn Hafsteinsson skoraði bæði mörk leiksins á síðustu sextán mínútunum en bæði lið enduðu með tíu menn inn á vellinum. 6. ágúst 2014 15:20 Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Fótbolti Óttast að Isak hafi fótbrotnað Enski boltinn Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Hjalti Þór ráðinn aðalþjálfari Álftaness Körfubolti HM í pílu: Littler flaug áfram og kvöldinu lauk með spennutrylli Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Fótbolti Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Þór - Fram 0-2 | Guðmundur Steinn með tvö Framarar enduðu fimm leikja taphrinu sína í Pepsi-deild karla í kvöld með því að sækja þrjú stig norður eftir 2-0 sigur á Þórsurum í 14. umferð deildarinnar. Guðmundur Steinn Hafsteinsson skoraði bæði mörk leiksins á síðustu sextán mínútunum en bæði lið enduðu með tíu menn inn á vellinum. 6. ágúst 2014 15:20