Meirihlutinn í góðri stöðu í Fjarðabyggð Sveinn Arnarsson skrifar 28. apríl 2014 15:55 Fjarðabyggð. Vísir/Vilhelm
Fjarðabyggð er sameinað sveitarfélag nokkurra þéttbýlisstaða á Austfjörðum; Neskaupstaðar, Eskifjarðar, Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar. Í sveitarfélaginu bjuggu 4.675 íbúar í upphafi árs og á kjörskrá í komandi sveitarstjórnarkosningum verða 3.362. Fjöldi íbúa síðustu ár fór hæst upp í rúm 5.700 árið 2007, þegar framkvæmdir stóðu sem hæst við uppbyggingu álverksmiðju Alcoa á Reyðarfirði. Síðan þá hefur íbúafjöldi náð jafnvægi og sjást merki þess að íbúum fjölgi jafnt og þétt í Fjarðabyggð. Þrír flokkar eiga sæti í bæjarstjórn Fjarðabyggðar. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn mynda sex manna meirihluta gegn þremur fulltrúum Fjarðalistans. Þessi framboð bjóða ein fram aftur og ekki eru líkur á því að nýtt framboð skerist í leikinn á síðustu metrunum. Ekki er breyting á oddvitum framboðanna. Elvar Jónsson, Jens Garðar Helgason og Jón Björn Hákonarson leiða aftur sína lista.Meirihlutinn heldur velli Flokkarnir þrír fá allir þrjá menn kjörna samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Í síðustu kosningum fengu Sjálfstæðismenn fjóra menn, Fjarðalistinn þrjá og Framsókn tvo. Fjórði maður Sjálfstæðisflokksins flyst því yfir á Framsóknarflokkinn og meirihlutinn heldur velli samkvæmt skoðanakönnuninni. Samkvæmt könnuninni eru öll framboðin nánast jafnstór. Fimm karlar og fjórar konur taka sæti í nýrri bæjarstjórn verði þetta niðurstöður kosninga.Lækkun skulda gengið vel Kjörtímabilið sem nú er á enda hefur að mörgu leyti gengið vel í Fjarðabyggð. Skuldir sveitarfélagsins voru miklar í upphafi kjörtímabilsins og einhentu flokkarnir sér í sameiningu við að ná niður skuldum. Meirihluti og minnihluti hafa unnið saman að því markmiði og árangurinn eftir því. Í byrjun árs 2014 hefur skuldaviðmið Fjarðabyggðar komist niður í 167% en árið 2011 var skuldaviðmiðið rúmlega 220%. Allir flokkar hafa lagst á eitt við lækkun skulda. Lykilþátturinn hafi verið pólitískur stöðugleiki í bæjarstjórn þar sem minnihlutinn hafi ekki staðið á móti þessu verkefni heldur þvert á móti lagt sín lóð á vogarskálarnar.Vegstæði og strætó Þótt samvinna allra flokka hafi að mestu gengið vel eru oddvitar allra framboða á því að um tvennt hafi ekki ríkt eining í bæjarstjórn. Það fyrra varðar almenningssamgöngur innan sveitarfélagsins og gjaldskrá þess efnis. Minnihlutinn lagði ríka áherslu á að allt sveitarfélagið væri eitt gjaldsvæði. Raunin er sú að íbúar greiða ólíkt gjald eftir því hvar þeir búa innan sveitarfélagsins. Flokkarnir tókust á hvað þetta varðar og vildi minnihlutinn meina að þarna væri um grófa mismunun að ræða eftir búsetu. Þessari gagnrýni hafnaði meirihlutinn á sínum tíma og benti á það mikla framfaraskref að hafa komið á almenningssamgöngum innan sveitarfélagsins. Það síðara sem oddvitar eru sammála um að hafi ekki verið sameining um, er vegalagning við nýjan átta deilda leikskóla í Neskaupstað. Minnihlutinn lagði áherslu á að færa veginn niður fyrir leikskólann þannig að hann myndi ekki liggja milli leikskóla og grunnskóla. Málið væri í senn öryggismál og skólamál þar sem meiri samlegð gæfist með því að hafa ekki veg á milli bygginganna. Meirihlutinn taldi ekki vera fjármagn til þess að færa veginn niður fyrir leikskólann og einnig að pláss væri ekki til staðar. Jens Garðar Helgason.Skuldalækkun stóra málið Að mati Jens Garðars Helgasonar, oddvita Sjálfstæðismanna, verður áframhaldandi aðhald í rekstri og lækkun skulda stóra málið í komandi kosningum. „Mikill árangur hefur náðst í lækkun skulda og það verkefni mun halda áfram á næsta kjörtímabili. Nú hefur kannski gefist ákveðið svigrúm til gjaldlækkana og framkvæmda á vegum sveitarfélagsins. Þegar bæjarsjóður er ekki ofhaldinn af peningum eru hlutir sem sitja á hakanum. Viðhald vega er til að mynda verkefni sem þarf að einhenda sér í.“ Um skipulag við nýjan átta deilda leikskóla í Neskaupstað segir Jens Garðar að forgangsmálið hafi verið það að koma á átta deilda leikskóla. Ekki hafi verið svigrúm innan fjárhagsramma að færa veginn. Elvar Jónsson, oddviti minnihlutans í Fjarðalistanum, segist vona að kosningabaráttan muni snúast um félags-, fræðslu- og húsnæðismál. „Fjarðalistinn er félagshyggjuafl, óháð stjórnmálaöflum á landsvísu. Við viljum tryggja félagslegt réttlæti. Úrræða er þörf í félagsmálum almennt í sveitarfélaginu.“ Elvar segir það lykilatriði að íbúum sveitarfélagsins sé ekki mismunað. „Afstaða Fjarðalistans er skýr í þeim efnum. Allir íbúar sveitarfélagsins eiga að sitja við sama borð þegar kemur að gjaldtöku fyrir almenningssamgöngur. Kjósendur sem eru ósáttir hljóta að horfa til þess að tryggja þeim fulltrúum aukið vægi í bæjarstjórn sem hafa talað skýrt í þessum efnum.“ Jón Björn Hákonarson, oddviti Framsóknarflokksins, telur að árangur meirihlutans hvað varðar lækkun skulda á kjörtímabilinu verði kjósendum ofarlega í huga þegar gengið er að kjörborðinu. „Stóra málið verður áframhaldandi aðhald í rekstri sveitarfélagsins. Bæjarsjóður stendur orðið ágætlega en áframhaldandi aðhalds er þörf. Öryggi vegfarenda á leið milli þéttbýlisstaða innan sveitarfélagsins verður eitt af stóru málunum, svokallaður Suðurfjarðarvegur er stórhættulegur og úrbóta er þörf.“Páll Björgvin Guðmundsson.Páll vonast eftir endurráðningu Páll Björgvin Guðmundsson, sem ráðinn var bæjarstjóri Fjarðabyggðar eftir sveitarstjórnarkosningar 2010, hefur hug á að halda áfram störfum fyrir sveitarfélagið. „Sé um það almenn sátt innan nýrrar bæjarstjórnar er ég jákvæður fyrir því að sinna áfram starfi bæjarstjóra. Samskiptin við núverandi bæjarstjórn, bæði meiri- og minnihluta, hafa verið góð og árangur í rekstri og í verkefnum á vettvangi sveitarfélagsins verið mikill,“ segir Páll Björgvin.
Kosningar 2014 fréttir Mest lesið 51 prósent sé nóg Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Fleiri fréttir Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Sjá meira