Prinsipplaus umræða úti á túni Heimir Már Pétursson skrifar 28. apríl 2014 19:30
Fjármálaráðherra segir formenn gömlu stjórnarflokkanna telja að upphæð veiðigjalda eigi að ráðast af þörf ríkissjóðs fyrir tekjur en ekki af stöðu útgerðarinnar. En ráðherrann var spurður út í það tekjutap sem nýtt frumvarp um veiðigjöld hefur á stöðu ríkissjóðs á Alþingi í dag. Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar sagði að frumvarp sjávarútvegsráðherra sem nýlega var dreift á Alþingi feldi í sér áframhaldandi lækkun á veiðigjöldum á útgerðina. Að hluta til megi rekja þetta til lægra afurðaverðs til einstakra greina sjávarútvegsins. En lækkun gjaldsins hefði áhrif á stöðu ríkissjóðs. „Er ekki ráð í fyrsta lagi að leggja nú á gjald á nýjar tegundir, upphafsgjald í makríl, að leggja gjald á veiðar á tegundum sem ekki hafa áður verið hluti af hlutdeildarkerfinu en koma nú nýjar inn,“ spurði Árni Páll. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra tók undir með Árna Páli að nú hefðu stjórnvöld sökum reynslunnar betra tæki til að dreifa veiðigjaldinu í samræmi við afkomu útgerða í einstökum tegundum. „Þá er að koma betur og betur í ljós hversu mjög fyrrverandi ríkisstjórn var úti á túni í álagningu gjaldsins á síðasta kjörtímabili,“ sagði fjármálaráðherra. Með áætlun um tekjur af veiðigjöldum upp á allt að 20 milljarða til ársins 2016, sem ekki gengi upp. „Án þess að það myndi hafa verulega auknar byrðar á útgerðina í för með sér,“ sagði Bjarni en þá kallaði Helgi Hjörvar þingflokksformaður Samfylkingarinnar framí fyrir honum: „Aumingja útgerðin“. Og Bjarni svaraði með nokkurri vanþóknun: „Aumingja útgerðin, heyrist hér kallað úr þingsal. Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna sagði fjármálaráðherra ekki hafa áhyggjur af tveggja milljarða tekjutapi ríkissjóðsen við afgreiðslu fjárlaga hefðu stjórnarflokkarnir haft áhyggjur af mun minni upphæðum t.d. varðandi námsmenn. „Og ég held að þetta snúist ekki bara um afkomu útgerðarinnar. Ég held að þetta snúist um pólitík. Um það mynstur sem þessi ríkisstjórn setur fram um að lækka hér veiðigjöld, um að láta auðlegðarskattinn falla niður og auka á meðan álögur á námsmenn og sjúklinga. Það eru ekki lækkaðir hér skattar á tekjulægsta fólkið þeir eru lækkaðir á tekjuhæsta fólkið,“ sagði Katrín. Fjármálaráðherra sagði þessa umræðu algerlega prinsipplausa af hálfu vinstriflokkanna. „Umræða sem byrjaði á því að snúast um að menn ættu að greiða fyrir aðgang hóflegt, sanngjarnt gjald. Hún er farin að snúast um það, hvað þarf ríkissjóður. Hún snýst bara um það,“ sagði Bjarni Benediktsson.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira