Sport

Myrtur eftir rifrildi um nammi

Ryan Bolden.
Ryan Bolden.
Ryan Bolden var valinn í fyrstu umferð nýliðavals MLB-deildarinnar árið 2010 af LA Angels. Þá þótti hann gríðarlegt efni.

Ferill hans komst aldrei á flug og hann lagði skóna á hilluna í fyrra með ónýtt bak.

Síðastliðinn miðvikudag var hann svo skotinn til bana. Aðdragandi morðsins er lyginni líkastur.

Tíu ára krakkar voru að rífast um nammi og fljótlega fóru fullorðnir að skipta sér af rifrildinu. Upp úr sauð síðan og endaði rifrildið með því að Bolden var myrtur.

Lögreglan hefur mann grunaðan um morðið en er enn að yfirheyra vitni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×