Stal á fjórða tug flaskna af sterku áfengi, raftækjum og sælgæti Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. maí 2014 17:21
Hæstiréttur þyngdi í dag fangelsisdóm yfir karlmanni fyrir ítrekaðan þjófnað úr átta mánuðum í tíu mánuði. Dómurinn er óskilorðsbundinn. Málið var dómtekið í Héraðsdómi Norðurlands Eystra í maí 2013 og var ákæran í tveimur liðum. Annars vegar fyrir að hafa stolið á fjórða tug flaskna af sterku áfengi auk flaskna af bjór og léttara áfengi aðfaranótt 9. október 2012. Hins vegar fyrir að hafa sömu nótt brotist inn í verslun og stolið þaðan myndavél, rafmagnsrakvél, borðsíma, þremur farsímum, borasetti, vinnuvettlingum, tveimur kartonum af sígarettum auk gosdrykkja og súkkulaðistykkja. Var maðurinn í slagtogi við annan mann í því ráni. Hlaut sá sex mánaða fangelsi í héraði. Sakavottorð mannsins nær aftur til ársins 1996 þegar hann var dæmdur fyrir auðgunarbrot. Síðan þá hefur hann verið dæmdur tólf sinnum fyrir slík brot, síðast í júlí 2009. Með hliðsjón af löngum sakaferli mannsins var hann dæmdur í tíu mánaða fangelsi.Dóminn í heild sinni má nálgast á vef Hæstaréttar.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira