Lífið

111 leiðir til að hafa ofan af fyrir börnum í óveðri

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Í dag lítur allt út fyrir að stormur geysi yfir landið og að margir komist lítið sem ekkert út úr húsi.

Það þarf samt ekki bara að vera leiðinlegt að vera lokaður inni eins og vefsíðan Popsugar sýnir fram á.

Á vefsíðunni er að finna 111 leiðir til að hafa ofan af fyrir yngstu kynslóðinni innandyra svo foreldrar og börn missi ekki vitið.

Á listanum kennir ýmissa grasa og er þar ýmislegt föndur, eins og að búa til sinn eigin leir, og ýmislegt fleira, eins og karókí og bókalestur.

Kíkið á listann í heild sinni hér. Ef ykkur vantar efnivið hlaupið þá út í næstu verslun núna áður en veðrið skellur á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×