Fárviðri út af Vopnafirði Jakob Bjarnar skrifar 22. október 2014 07:22 Rúmir fimmtíu metrar á sekúndu jafngildir fárviðri. visir/gva
Þegar síldveiðiskipið Faxi var á leið til Vopnafjarðar í fyrrinótt sló vindhraðamælir skipsins upp í 51 metra á sekúndu, sem jafngildir fárviðri. Á heimasíðu HB Granda segir af þessu en þar greinir Albert Sveinsson skipstjóri frá erfiðri siglingu skipsins sem þá að koma af síldarmiðunum vestur af landinu og var að sigla upp með Austfjörðunum. Það varð skipverjum til happs að vindur stóð af landi þegar verst var og með því að sigla eins grunnt og nærri landi og hægt var, var skipið í þokkalegu skjóli af landi og lá aldrei undir áföllum. Annars eru síldveiðiskipin aftur að týnast á miðin djúpt úti af Snæfellsnesi, eftir bræluna. 51 meter á sekúndu er býsna mikill vindhraði. Í grein eftir Trausta Jónsson veðurfræðing, sem finna má á vef Veðurstofu Íslands, er mesti 10-mínútna meðalvindhraði á landinu 62,5 m/s á Skálafelli 20. janúar 1998. Þetta var klukkan 13. Mesta 3 sekúndna vindhviða á landinu: 74,5 m/s á Gagnheiði 16. janúar 1995 kl. 4. „Þetta veður er gjarnan kennt við snjóflóðið mannskæða í Súðavík,“ skrifar Trausti.
Veður Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Fleiri fréttir Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Sjá meira