Fótbolti

Guðlaugur Victor skrifaði undir langtíma samning við Helsingborg

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðlaugur Victor á góðri stund.
Guðlaugur Victor á góðri stund. Vísir/Getty
Knattspyrnumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson hefur skrifað undir fjögurra ára samning við sænska úrvalsdeildarliðið Helsingborg IF.

Guðlaugur, sem er 23 ára, gekk til liðs við Helsingborg í byrjun ágúst frá hollenska liðinu NEC Nijmegen. Hann hefur nú gert langtíma samning við sænska liðið.

Guðlaugur, sem hefur komið víða við á stuttum ferli, hefur leikið sjö deildarleiki með Helsingborg á tímabilinu.


Tengdar fréttir

Guðlaugur til Helsingborgar

Knattspyrnumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson er genginn raðir sænska úrvalsdeildarliðsins Helsingborgar IF.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×