Fengu að smakka ís úr mjólk mæðra í Hveragerði 12. ágúst 2014 23:15
Fjórar mæður úr Hveragerði lögðu Kjörís til Brjóstamjólk svo hægt væri að framleiða brjóstamjólkurísinn Búbís. Ísland í dag fór í Hveragerði, fylgdist með framleiðslunni og fékk að smakka. „Þetta er nýjasti ísinn okkur, sem verður í boði á Ísdaginn 16. ágúst. Hann er búinn til úr brjóstamjólk og er óvenjulegur að því leytinu til. Þetta hefur líklega aldrei verið gert á Íslandi áður, segir Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjörís. Mjólkin kemur frá mjólkandi mæðrum í Hveragerði. Að sögn Guðrúnar verður ísinn þó seint söluvara því erfitt sé að fá nógu mikið hráefni. Hún vilji frekar að hráefnið fari í munn ungabarna heldur fullorðinna. Það sé ákjósanlegast þar sem brjóstamjólkin sé besta næringin fyrir börnin okkar. Fólk getur smakkað Búbís á Ísdeginum, sem haldinn verður 16. ágúst og dæmt um hvort hann sé verri eða betri en venjulegur vanilluís. „Ég held að fullt af fólki vilji smakka. Einhverjum munu þykja þetta ógeðfellt, sem mér finnst alveg með ólíkindum því við viljum allt það besta fyrir börnin okkar. Við leggjum mikla áherslu á að það besta í fyrstu næringu ungabarna er brjóstamjólk. Fyrst við erum tilbúin til að gefa börnunum okkar brjóstamjólk, af hverju erum við ekki tilbúin til að smakka hana sjálf,“ segir Guðrún.
Tengdar fréttir Bjóða upp á ís úr brjóstamjólk mæðra frá Hveragerði „Já, þetta er ís unnin úr brjóstamjólk. Þetta er bara venjulegur ís, nema í staðinn fyrir að mjólkin komi úr kú kemur hún úr kvenmanni," segir Guðrún Hafsteinsdóttir, forstjóri Kjöríss. Ísinn úr brjóstamjólkinni ber heitið Búbís. 5. ágúst 2014 12:52 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fleiri fréttir Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sjá meira
Bjóða upp á ís úr brjóstamjólk mæðra frá Hveragerði „Já, þetta er ís unnin úr brjóstamjólk. Þetta er bara venjulegur ís, nema í staðinn fyrir að mjólkin komi úr kú kemur hún úr kvenmanni," segir Guðrún Hafsteinsdóttir, forstjóri Kjöríss. Ísinn úr brjóstamjólkinni ber heitið Búbís. 5. ágúst 2014 12:52