Íslenski boltinn

Sjáðu vítaspyrnuna hans Kjartans | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR, brenndi af vítaspyrnu á móti Þór í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi, en Þór vann leikinn, 2-0.

Kjartan fékk tækifæri til að minnka muninn á 90. mínútu en þrumaði boltanum hátt yfir markið. Sjaldséð tilþrif hjá þessari annars frábæru vítaskyttu.

Honum hefur nú reyndar brugðist bogalistin tvisvar sinnum í röð. Twitter-síðan KR Tölfræði greindi frá því í gærkvöldi að Kjartan hefði skorað úr ellefu spyrnum í röð, en er nú búinn að klúðra tveimur síðustu.

Kjartan Henry er einhver albesta vítaskytta Pepsi-deildarinnar, en fyrir tveimur árum varð hann fyrstur til að skora þrennu úr vítaspyrnum þegar KR lagði ÍBV í Frostaskjólinu.

Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur Stöðvar 2 Sports, hitti Kjartan að máli í Vesturbænum eftir það afrek og fékk hann til að sýna hvernig alvöru skyttur bera sig að.

Þórsarar gerðu góðlátlegt grín að Kjartani Henry eftir leikinn í gær, en Jóhann Helgi Hannesson, framherji Þórs, birti mynd á Twitter-síðu sinni þar sem hann sagðist hafa fundið boltann úti við Hrísey.

Þórsarar lyftu sér upp í tíunda sæti Pepsi-deildarinnar með sigrinum, en þeir hafa átta stig eftir ellefu umferðir. KR er með 19 stig í þriðja sæti en getur misst FH eða Stjörnuna lengra fram úr sér á sunnudaginn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×