Sjáðu vítaspyrnuna hans Kjartans | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. júlí 2014 12:45
Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR, brenndi af vítaspyrnu á móti Þór í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi, en Þór vann leikinn, 2-0. Kjartan fékk tækifæri til að minnka muninn á 90. mínútu en þrumaði boltanum hátt yfir markið. Sjaldséð tilþrif hjá þessari annars frábæru vítaskyttu. Honum hefur nú reyndar brugðist bogalistin tvisvar sinnum í röð. Twitter-síðan KR Tölfræði greindi frá því í gærkvöldi að Kjartan hefði skorað úr ellefu spyrnum í röð, en er nú búinn að klúðra tveimur síðustu. Kjartan Henry er einhver albesta vítaskytta Pepsi-deildarinnar, en fyrir tveimur árum varð hann fyrstur til að skora þrennu úr vítaspyrnum þegar KR lagði ÍBV í Frostaskjólinu. Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur Stöðvar 2 Sports, hitti Kjartan að máli í Vesturbænum eftir það afrek og fékk hann til að sýna hvernig alvöru skyttur bera sig að. Þórsarar gerðu góðlátlegt grín að Kjartani Henry eftir leikinn í gær, en Jóhann Helgi Hannesson, framherji Þórs, birti mynd á Twitter-síðu sinni þar sem hann sagðist hafa fundið boltann úti við Hrísey. Þórsarar lyftu sér upp í tíunda sæti Pepsi-deildarinnar með sigrinum, en þeir hafa átta stig eftir ellefu umferðir. KR er með 19 stig í þriðja sæti en getur misst FH eða Stjörnuna lengra fram úr sér á sunnudaginn.2 - Eftir að hafa skorað úr 11 vítaspyrnum í röð hefur Kjartan Henry klikkað á síðustu tveimur spyrnum sínum. Bogalistin. — KR Tölfræði (@KRstats) July 10, 2014Fórum í sjóstöng eftir leik og fundum boltann sem Kjartan Henry skaut yfir úr vítinu fljótandi við Hrísey #kemurpic.twitter.com/g5mFXRGNLm — Jóhann Hannesson (@JohannHelgi9) July 10, 2014
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Þór - KR 2-0 | Sjáðu mörkin sem felldu KR-inga Þórsarar fóru á kostum gegn KR og skelltu Íslandsmeisturnum með 2-0 sigri á heimavelli. 10. júlí 2014 11:03 „Fundum boltann sem Kjartan Henry skaut yfir úr vítinu fljótandi við Hrísey“ Þórsarar gera grín að vítaspyrnu KR-ingsins sem hann negldi hátt yfir markið í gærkvöldi. 11. júlí 2014 10:15 Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Þór - KR 2-0 | Sjáðu mörkin sem felldu KR-inga Þórsarar fóru á kostum gegn KR og skelltu Íslandsmeisturnum með 2-0 sigri á heimavelli. 10. júlí 2014 11:03
„Fundum boltann sem Kjartan Henry skaut yfir úr vítinu fljótandi við Hrísey“ Þórsarar gera grín að vítaspyrnu KR-ingsins sem hann negldi hátt yfir markið í gærkvöldi. 11. júlí 2014 10:15
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“