Krefjast þess að ríkisstjórnin standi við kosningaloforðin Samúel Karl Ólason skrifar 3. maí 2014 19:25 Frá samstöðufundi þann 1. mars síðastliðinn. Vísir/Friðrik
Fjöldi fólks kom saman í rigningunni á samstöðufundi á Austurvelli í dag, til að krefjast þjóðaratkvæðis um áframhald viðræðna við ESB. Í tilkynningu segir að samtals hafi tugþúsundir landsmanna lagt leið sína á fundina undarnfarnar vikur til að styðja þessa einföldu kröfu og krefjast þess að ráðamenn standi við gefin loforð. Ræðumenn dagsins voru þau Hallgrímur Helgason, Katrín Fjeldsted, Svanur Kristjánsson og Stefán Jón Hafstein. „Ef að ágreiningur er á milli þings og þjóðar í mikilvægum málum skal þjóðin ráða. Það er hin íslenska leið til lýðræðis,“ sagði Svanur Kristjánsson í ræðu sinni. „Fimm ráðherrar Sjálfstæðisflokksins sögðust fyrir ári með ítarlegum útskýringum: Það verður þjóðaratkvæðagreiðsla. Formaður þeirra bætti um betur: Við þetta verður staðið. Og forsætisráðherra sagði sjálfur: Auðvitað verður þjóðaratkvæðagreiðsla,“ sagði Stefán Jón Hafstein. „Sjálfstæðismenn gáfu það út að kosið yrði um framhaldið. Þeir komast ekki frá því með sóma að svíkja það. Orðu skulu standa,“ sagði Katrín Fjeldsted. Ræðu Hallgríms Helgasonar má skoða hér neðst.Á fundinum var samþykkt ályktun sem lesa má hér að neðan:Tugþúsundir hafa mætt á Austurvöll til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu, 53.555 hafa skrifað undir áskorun þess efnis og skoðanakönnun hefur leitt í ljós að 82% þjóðarinnar er sama sinnis. Við krefjumst þess að ríkisstjórnin standi við kosningaloforðin um að þjóðin ákveði framhald aðildarviðræðna við ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu. Við krefjumst þess að formenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins svari því, áður en Alþingi fer í sumarleyfi, hvort flokkar þeirra ætli að standa við kosningaloforð sín. Kjósendur eiga heimtingu á skýrum svörum áður en gengið verður til sveitarstjórnarkosninga 31. maí næstkomandi. Að öðrum kosti munum við mæta tvíefld til leiks þegar þing kemur saman á ný.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Borgin greitt nærri tuttugu milljónir fyrir rafmagn í hjólhýsabyggðinni SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sjá meira