Innlent

Krefjast þess að ríkisstjórnin standi við kosningaloforðin

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá samstöðufundi þann 1. mars síðastliðinn.
Frá samstöðufundi þann 1. mars síðastliðinn. Vísir/Friðrik
Fjöldi fólks kom saman í rigningunni á samstöðufundi á Austurvelli í dag, til að krefjast þjóðaratkvæðis um áframhald viðræðna við ESB. Í tilkynningu segir að samtals hafi tugþúsundir landsmanna lagt leið sína á fundina undarnfarnar vikur til að styðja þessa einföldu kröfu og krefjast þess að ráðamenn standi við gefin loforð.

Ræðumenn dagsins voru þau Hallgrímur Helgason, Katrín Fjeldsted, Svanur Kristjánsson og Stefán Jón Hafstein.

„Ef að ágreiningur er á milli þings og þjóðar í mikilvægum málum skal þjóðin ráða. Það er hin íslenska leið til lýðræðis,“ sagði Svanur Kristjánsson í ræðu sinni.

„Fimm ráðherrar Sjálfstæðisflokksins sögðust fyrir ári með ítarlegum útskýringum: Það verður þjóðaratkvæðagreiðsla. Formaður þeirra bætti um betur: Við þetta verður staðið. Og forsætisráðherra sagði sjálfur: Auðvitað verður þjóðaratkvæðagreiðsla,“ sagði Stefán Jón Hafstein.

„Sjálfstæðismenn gáfu það út að kosið yrði um framhaldið. Þeir komast ekki frá því með sóma að svíkja það. Orðu skulu standa,“ sagði Katrín Fjeldsted.

Ræðu Hallgríms Helgasonar má skoða hér neðst.

Á fundinum var samþykkt ályktun sem lesa má hér að neðan:

Tugþúsundir hafa mætt á Austurvöll til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu, 53.555 hafa skrifað undir áskorun þess efnis og skoðanakönnun hefur leitt í ljós að 82% þjóðarinnar er sama sinnis.

Við krefjumst þess að ríkisstjórnin standi við kosningaloforðin um að þjóðin ákveði framhald aðildarviðræðna við ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Við krefjumst þess að formenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins svari því, áður en Alþingi fer í sumarleyfi, hvort flokkar þeirra ætli að standa við kosningaloforð sín. Kjósendur eiga heimtingu á skýrum svörum áður en gengið verður til sveitarstjórnarkosninga 31. maí næstkomandi.

Að öðrum kosti munum við mæta tvíefld til leiks þegar þing kemur saman á ný.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×