„Svo mikil fyrirlitning á skoðunum annarra að ég get ekki samsamað mig með slíku fólki“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 27. apríl 2014 13:14 Ragnheiður Ríkharðsdóttir er þingflokssformaður Sjálfstæðisflokksins. vísir/gva „
Ég ætla að vera áfram í Sjálfstæðisflokknum,“ sagði Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, í þættinum Sunnudagsmorgun í morgun. Hún segist ekki ætla að ganga í nýjan Evrópusinnaðan hægriflokk verði hann stofnaður en gagnrýnir þó harðlega stefnu flokksins í Evrópumálum. Ragnheiður var gestur þáttarins ásamt Ólafi Stephensen, ritstjóra Fréttablaðsins, og segist Ólafur búast fastlega við því að flokkurinn verði stofnaður. Gísli Marteinn Baldursson, umsjónarmaður þáttarins, spurði Ragnheiði út í ummæli fólks innan flokksins um að það væri „góð grisjun“ að losna við fólk eins og hana úr flokknum. „Þetta er mjög algengt í Staksteinum Morgunblaðsins, leiðara Morgunblaðsins og Reykjavíkurbréfinu um það að fólk sem hefur þá skoðun sem ég hef sé óæskilegt í Sjálfstæðisflokknum,“ segir Ragnheiður. „Veistu, ég gef ekkert fyrir það, þó að þar sé fyrrverandi formaður flokksins að skrifa, oftast nær, þá finnst mér það vera svo mikil fyrirlitning á skoðunum annarra að ég get ekki samsamað mig með slíku fólki. Ef Sjálfstæðisflokknum á Íslandi, flokki sem er að verða 85 ára gamall, finnst það góð grisjun að ekki séu allir á einni skoðun þá á þessi flokkur bara ekkert heima. Ef hann ætlar bara að vera einstefnuflokkur og einstrengingslegur flokkur þá náttúrulega er hann að missa það sem hann hafði og hefur haft í gegnum tíðina, allt að 40 prósenta fylgi landsmanna, sem er dottið niður í 26 prósent og við þurfum að hugsa út frá því.“
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Sjá meira