Innlent

Liggur þungt haldinn á gjörgæslu

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/vilhelm
Karlmaðurinn sem var fluttur á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hann ók bifhjóli sínu út af veginum ofarlega í Kömbunum í gær er haldið sofandi í öndunarvél að sögn vakthafandi læknis á Landsspítalanum í Fossvogi.

Maðurinn er með alvarlega áverka og er enn á gjörgæsludeild.

Að sögn lögreglu slasaðist maðurinn alvarlega en hann virðist hafa misst stjórn á hjólinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×