Leita að blúndugardínum og blómapottum í iðnaðarhverfum Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 29. apríl 2014 12:00 Í mörgum tilvikum er um að ræða iðnaðarhúsnæði . "Sumt af þessu húsnæði er eflaust með þokkalega vel unandi eldvarnir en hluti af þessu húsnæði er það alls ekki,“ segir Bjarni. VÍSIR/VILHELM
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur áhyggjur af vaxandi fjölda fólks sem býr í ósamþykktu leiguhúsnæði. „Það eru tilvik þar sem rekstraraðilar eru að leigja hæðir og hús af eignarhaldsfélögum ,eða hverjum sem eiga þessi húsnæði, hólfa þau niður og leigja til þriðja aðila,“ segir Bjarni Kjartansson, sviðsstjóri forvarnarsviðs slökkviliðsins. „Það er orðinn alvöru rekstur í kringum þetta.“ Í mörgum tilvikum er um að ræða iðnaðarhúsnæði. „Sumt af þessu húsnæði er eflaust með þokkalega vel unandi eldvarnir, en hluti af þessu húsnæði er það alls ekki,“ segir Bjarni. Framkvæmdarstjóri samtaka leigjenda, Hólmsteinn Brekkan, lýsti yfir áhyggjum sínum vegna slæms ástands á leigumarkaðnum í samtali við Vísi í síðustu viku. Hann sagði fátrækrahverfi vera risin og vísaði þar til fólks sem búi á víð og dreif um höfuðborgarsvæðið í ósamþykktum íbúðum, bílskúrum og iðnaðarhúsnæði. „Ég heyrði meira að segja af fólki í gær sem býr í hesthúsi þar sem hefur verið komið upp einhverskonar svefnaðstöðu,“ sagði hann.Í þrígang kembt iðnaðarhverfi Fólk tilkynnir ekki til slökkviliðsins hvar það búi en Bjarni segir að slökkviliðið finni oft íbúðarhúsnæði við reglulegar eldvarnarskoðanir í iðnaðarhúsnæði. Í alvarlegri tilvikum þurfi að loka húsnæðinu. En stundum sé hægt að beita dagsektum og fara fram á að ákveðnar breytingar verið gerðar. Það sé þó eingöngu hægt þegar húsnæðið er á svæði sem skipulag heimilar íbúabyggð. Á síðustu tíu árum hefur slökkviliðið í þrígang kembt iðnaðarhverfi með það að markmiði að finna íbúðarhúsnæði þar. „Þá förum við og leitum markvisst. Athugum til dæmis hvar séu ljós að kvöldlagi og leitum eftir blúndugardínum og blómapottum sem eiga augljóslega ekki heima í iðnaðarhverfum,“ segir Bjarni. Síðast var farið í slíka leit árið 2009. „Þá fundum við ýmislegt. Við fáum líka stundum ábendingar.“Leysir ekki vandann að henda fólki út Á þessu vandamáli þarf að finna varanlega lausn að sögn Bjarna. Það sé ekki alltaf lausn að henda fólkinu út úr íbúðunum sínum. Slíkt geti komið mjög harkalega niður á því. Fólkið hafi ekki endilega í nein önnur hús að vernda nema þá jafnvel svipað húsnæði. Fólk sé því ekki látið yfirgefa híbýli sín nema slökkviliðið meti það hreinlega svo að fólk sé betur sett á götunni næstu nótt en í húsinu sem það býr í. Hann bendir á að lagaleg úrræði við þessum vanda vanti. „Af hverju er til dæmis ekki saknæmt með skýrum hætti að leigja út húsnæði sitt sem ekki uppfyllir kröfur um eldvarnir?,“ spyr Bjarni. Slökkviliðið hefur kært í slíkum málum. þá var um að ræða að eldur kom upp í húsnæði sem var algjörlega óviðunandi og fólkið sem bjó þar var í mikilli hættu. En lögreglan taldi það mál ekki líklegt til sakfellingar og því var vísað frá. „Löggjöfin mætti vera skýrari.“Dreifðu grænum límmiðumÞegar þeir finna börn sem búa með fjölskyldu sinni í óviðunandi húsnæði eru barnaverndaryfirvöld látin vita. Þau bregðist hratt við og aðstoði fjölskyldur þá við að finna hentugra húsnæði. Slökkvistarf í svona hverfum verður erfiðara. „Þegar við göngum til verks í slökkvistarfi er lífsbjörgun alltaf í forgangi. Þegar fólk er ekki skráð í hús getur verið mjög snúið að komast að því hvort það búi einhver þar eða ekki.“ „Við höfum reynt að dreifa grænum límmiðum sem fólk getur sett í glugga og þannig auðkennt að það búi þar og því eru meiri líkur á að við áttum okkur á hvar sé mögulega búseta,“ segir Bjarni.
Mest lesið 51 prósent sé nóg Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Fleiri fréttir Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Sjá meira