Meirihluti landsmanna á móti gjaldtöku Heimir Már Pétursson skrifar 19. apríl 2014 19:15
Meirihluti landsmanna er mótfallinn því að innheimt verði gjald fyrir að skoða helstu náttúruperlur landsins. Andstaðan er mest á meðal kjósenda Pírata, í Norðvesturkjördæmi og Kraganum. Deilur hafa staðið milli landeigenda á Geysi og ríkisins um innheimtu gjalds á ferðamenn sem koma að Geysi en iðnaðarráðherra hefur í undirbúningi upptöku náttúrupassa sem myndi gilda á helstu ferðamannastaði landsins. Í nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar tvö var spurt hvort fólki þætti rétt að innheimta gjald af þeim sem skoða helstu náttúruperlur landsins. Af þeim sem tóku afstöðu segja 42,2 prósent það vera rétt en 57,8 prósent telja það ekki rétt. 54 prósent þeirra sem segjast myndu kjósa Bjarta framtíð eru á móti gjaldheimtunni en 46 prósent eru henni fylgjandi. Naumur meirihluti kjósenda Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks styðja gjaldheimtuna, eða 52 prósent kjósenda hvors flokks en 48 prósent kjósenda stjórnarflokkanna telja ekki rétt að innheimta gjaldið. Fjörtíu prósent kjósenda Samfylkingarinnar telja rétt að innheimta gjald á helstu ferðamannastöðum en 60 prósent eru því mótfallin, en einungis 29 prósent kjósenda Vinstri grænna styðja gjaldtökuna og 71 prósent eru á móti. Andstaðan er þó mest meðal kjósenda Pírata, því 27 prósent þeirra telja rétt að innheimta gjaldið en 73 prósent kjósenda þeirra telja ekki rétt að innheimta gjald fyrir aðgang að helstu náttúruperlum landsins. Afstaða fólks er keimlík eftir búsetu. Þannig telja 43 prósent Reykvíkinga rétt að innheimta gjaldið en 57 prósent eru á móti, 38 prósent í norðvesturkjördæmi styðja gjaldið en þar eru flestir á móti því eða 62 prósent, í norðausturkjördæmi styðja 45 prósent gjaldið en 55 prósent eru því andsnúin, sömu sögu er að segja í Suðurkjördæmi en í suðvesturkjördæmi eða Kraganum, telja 40 prósent rétt að innheimta gjald af ferðamönnum við helstu náttúruperlur landsins en 60 prósent eru á móti því.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Skorar á Bjarna Guðjónsson að mæta sér Spenntur fyrir fundi með „góðum vinum Bandaríkjanna“ Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun Sjá meira