Leikhússtjórinn fyrrverandi sagður frábær á leiksviðinu Kristján Már Unnarsson skrifar 19. apríl 2014 19:45
Forstöðumaður Njálusetursins á Hvolsvelli og fyrrverandi leikhússtjóri hefur óvænt slegið í gegn í fyrsta hlutverki sínu á leiksviði. Hann þykir fara á kostum sem Hallur grámunkur í leikritinu um Önnu í Stóru-Borg, sem þessa dagana er sýnt í félagsheimilinu Heimalandi. Þetta eru allt áhugaleikarar hjá Leikfélagi Austur-Eyfellinga sem skjótast upp á svið í frítímanum milli daglegra anna í héraðinu, eins og bóndinn á Hrútafelli, Ármann Fannar Magnússon, skólabílstjórinn Guðrún Inga Sveinsdóttir frá Skógum, sem líka er formaður Leikfélagsins, og svo forstöðumaður Njálusetursins, Sigurður Hróarsson. Við hittum Sigurð hjá Rútshelli undir Eyjafjöllum þar sem munkurinn sem hann leikur átti að hafa búið. Sigurður segir það alveg til fyrirmyndar hjá leikfélaginu undir fjöllunum að velja sögu úr eigin sveit. Það sé nánast hægt að benda á staðina sem koma fyrir í verkinu út um gluggann á félagsheimilinu sem leikið er í. Sigurður var áður leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu og hjá Leikfélagi Akureyrar en stígur nú sjálfur í fyrsta sinn á svið og er í leikdómi sagður frábær í hlutverki Halls grámunks. Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld mátti sjá Sigurð í hlutverki munksins.Sigurður á leiksviðinu í félagsheimilinu Heimalandi á móti Bjarna Böðvarssyni, sem leikur Pál, hinn grimma bróður Önnu á Stóru-Borg.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.Spurður hvort það sé ekki erfitt fyrir hann, sem fyrrverandi leikhússtjóra, að vera undir stjórn annarra í áhugaleikhúsi svarar Sigurður: „Það er eiginlega bara ein leið með það: Að ákveða strax algerlega frá upphafi þá góðu reglu í leikhúsi að það verður einhver einn að ráða. Og í þessu tilviki var það alveg ljóst að það var ekki ég.“
Tengdar fréttir Anna faldi ástmann sinn í Paradísarhelli Ástarsaga sem fylgt hefur Eyfellingum mann fram af manni í fimmhundruð ár, sagan um Önnu á Stóru-Borg, vinnumanninn Hjalta og Paradísarhelli, hefur nú í fyrsta sinn verið færð upp á svið. 15. apríl 2014 21:00 Þegar Anna á Stóru-Borg tók 15 árum yngri pilt upp í rúm Eitt frægasta ástarævintýri Íslandssögunnar, sagan um þau Önnu á Stóru-Borg og fátæka smalapiltinn Hjalta, verður bakgrunnur þáttarins "Um land allt“ á Stöð 2 á morgun, þriðjudagskvöld. 14. apríl 2014 16:30 Mest lesið Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Svandís segir nei Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Fleiri fréttir Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda Sjá meira
Anna faldi ástmann sinn í Paradísarhelli Ástarsaga sem fylgt hefur Eyfellingum mann fram af manni í fimmhundruð ár, sagan um Önnu á Stóru-Borg, vinnumanninn Hjalta og Paradísarhelli, hefur nú í fyrsta sinn verið færð upp á svið. 15. apríl 2014 21:00
Þegar Anna á Stóru-Borg tók 15 árum yngri pilt upp í rúm Eitt frægasta ástarævintýri Íslandssögunnar, sagan um þau Önnu á Stóru-Borg og fátæka smalapiltinn Hjalta, verður bakgrunnur þáttarins "Um land allt“ á Stöð 2 á morgun, þriðjudagskvöld. 14. apríl 2014 16:30