Ísland flytur ríflega tvöfalt meira út í dollara en evru Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 2. apríl 2014 11:21 Frosti Sigurjónsson. vísir/pjetur
Ísland flytur ríflega tvöfalt meira út í dollara en evru. Þetta segir Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í viðtali í þættinum Reykjavík síðdegis í gærkvöld, en hann vakti athygli á málinu á vefsíðu sinni. Frosti grennslaðist fyrir um málið í samvinnu við Hagstofu Íslands og í ljós kom að um 56% af útflutningi Íslands er í bandarískum dollurum og aðeins 27% í evrum. Hann segir það töluvert útbreiddan misskilning að meiri hluti inn- og útflutnings Íslands sé í evru og sé hann líklega byggður á því að miklum útflutningi er umskipað í Hollandi. „Það virðist vera eins og þær vörur sem skipað er út til Hollands í dollurum séu taldar í evrum, því Holland er evruland. Það breytir því hins vegar ekki að útflutningur er í dollurum og Holland er ekki endanlegur áfangastaður nema að litlu leiti,“ segir Frosti.mynd/frostis.isÞá segir hann að á vefsíðu Seðlabankans komi fram að 65% af útflutningi sé í evrum. Það sé svokölluð þröng vöruskiptavog sem byggist á vöruviðskiptum og hafi það því náð að villa um fyrir mörgum. „Það kemur á óvart hér að einhverjir hafa flutt inn vörur eða þjónustu fyrir 35 mia og borgað með krónum. Er ekki líklegt að sá sem fékk krónurnar hafi farið með þær aftur til Íslands fjárfestingaleiðina á 20% afslætti? Hvað sem því líður, þá finnst mér löngu tímabært að loka fyrir þá mismunun að sumir geti fengið krónur á lægra verði en aðrir,“ segir Frosti.
Mest lesið Vaktin: Björgunarsveitir á fullu um land allt Innlent Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Innlent Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Innlent Sjónvarpsfréttir Sýnar vegna óveðursins Innlent Neita að afhenda dóma lögreglumanna Innlent Stúlkan er fundin Innlent Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Innlent Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Innlent Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Innlent Fleiri fréttir Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Snör handtök skiptu sköpum á Höfðatorgi Sjö vilja stýra Sjúkrahúsinu á Akureyri Árekstur í Borgarfirði 2025: Hálka ein meginorsaka banaslyss Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Bein útsending: Daði Már kynnir fjármálaáætlunina Forseti Slóveníu mætir á afmælisdegi Vigdísar Líf leiðir Sjálfstæðisflokk áfram á Akranesi Stúlkan er fundin Opna nýja möguleika í að binda kolefni með aðferð Carbfix Neita að afhenda dóma lögreglumanna Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Málþing um konur sem lifa við langvinn veikindi Telja að bílastæðum fækki eftir að þau voru færð úr uppdráttum Þakklátur að flestir fylgdu tilmælunum Geta ekki siglt Herjólfi að höfninni vegna óveðursins Barnlaus leikskóli Menningarhúsið fer ekki í íbúakosningu Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Strætó hættir akstri í dag Ráðin framkvæmdastjóri Rauða krossins Sjónvarpsfréttir Sýnar vegna óveðursins Vetrarþjónusta í gangi og fer á fullt um hádegi Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Þetta voru vinsælustu nöfnin á síðasta ári Innan við fimmtán prósent telja loftslagsbreytingar ekki staðreynd Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Þau skipa lista Samfylkingarinnar á Akranesi Vaktin: Björgunarsveitir á fullu um land allt Státum af klárasta barþjóni Evrópu Sjá meira