Verkefnastjórn ræður endurmati virkjunarkosta Svavar Hávarðsson skrifar 31. mars 2014 07:00 Hofsjökull og Þjórsárver Verkefnastjórn rammaáætlunar er ekki skyldug til að endurmeta Norðlingaölduveitu sem virkjunarkost, samkvæmt lagatúlkun umhverfisráðuneytisins, nema hún meti það svo að forsendur séu mjög breyttar. Fréttablaðið/Vilhelm
Verkefnisstjórn 3. áfanga rammaáætlunar (RÁ3) er það í sjálfsvald sett hvort hún fjallar um þá virkjanakosti sem voru flokkaðir í verndar- eða nýtingarflokk í 2. áfanga rammaáætlunnar (RÁ2). Þetta kemur fram í lögfræðiáliti umhverfis- og auðlindaráðuneytisins frá 12. mars. Orkustofnun hefur lagt 91 virkjanakost fyrir verkefnisstjórnina. Formaður verkefnastjórnarinnar segir að forgangsröðun þeirra sé nauðsynleg vegna tíma- og fjárskorts.Áhugi Orkustofnun auglýsti 1. október 2013 eftir umsóknum um hvaða virkjanakosti lögaðilar hefðu áhuga á að yrðu teknir til meðferðar hjá verkefnisstjórn RÁ3. Átti það einnig við um þá kosti sem áður hafði verið fjallað um og óháð því í hvaða flokk virkjanakostirnir voru settir við lok RÁ2, eins og segir í auglýsingunni, en eins og komið hefur fram lagði Orkustofnun á dögunum fyrir verkefnisstjórn rammaáætlunar 91 virkjanakost til umfjöllunar. Af þeim eru 27 nýir en um 64 virkjanakosti hefur verkefnisstjórn fjallað áður og flokkað í nýtingar-, bið-, eða verndarflokk. Þar af eru 19 virkjanakostir sem féllu í verndarflokk í afgreiðslu RÁ2, t.d. Norðlingaölduveita sem er afar umdeild. Stefán Gíslason, formaður verkefnastjórnarinnar, segir í svari til Fréttablaðsins að henni beri ekki skylda til að taka alla kostina fyrir, í það minnsta ekki kosti sem eru í orkunýtingar- eða verndarflokki og engin ný gögn hafa komið fram um. Vegna auglýsingar Orkustofnunar, og orðalags hennar, kom reyndar upp óvissa í verkefnisstjórn RÁ3 um lagalega stöðu þeirra kosta sem raðað var í orkunýtingarflokk eða verndarflokk í RÁ2 og eru komnir inn aftur til meðferðar. Verkefnastjórnin leitaði því lögfræðiálits umhverfis- og auðlindaráðuneytisins til að fá úr þessu skorið, en verkefnastjórninni var ekki ljóst hvort henni bæri að meta alla kostina á ný.Enginn vafi Í áliti ráðuneytisins um endurmat virkjunarkosta er tekinn af allur vafi um að lög nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun leggja þessa ákvörðun í hendur verkefnastjórninni óháð því hvernig virkjanakosturinn kom inn á hennar borð að nýju. „Í samræmi við framangreint er það mat ráðuneytisins að það sé í höndum verkefnisstjórnarinnar hvort tiltekinn virkjunarkostur verði endurmetinn eða ekki.“ Verkefnastjórn ber einfaldlega að rökstyðja ákvörðun sína um hvort forsendur hafa breyst, t.d. með nýjum og betri upplýsingum um viðkomandi virkjunarkost. Spurður hvort verkefnastjórnin þurfi ekki að forgangsraða þeim virjanakostum sem teknir verða til umfjöllunar vegna fjölda þeirra segir Stefán svo vera. „Verkefnisstjórn hlýtur að verða að forgangsraða. Eins kann hún að fá fyrirmæli frá ráðherra um það. Í öllu falli sé ég ekki hvernig á að vera hægt að fjalla um 91 virkjunarkost samtímis miðað við þann tímaramma og fjárveitingar sem verkefnisstjórnin hefur,“ segir Stefán sem hefur ekki upplýsingar um hvort til standi að auka fjárveitingar til rammaáætlunar vegna tillagna Orkustofnunar.Skyldan óbreytt Verkefnastjórnin óskaði einnig eftir áliti ráðuneytisins á lagalegri stöðu vegna þeirra virkjunarkosta sem hún hugsanlega ákveður að taka til endurmats í 3. áfanga, en engar ákvarðanir hafa verið teknar um slíkt. Er þar sérstaklega spurt hvort hægt sé að sækja um framkvæmdaleyfi á svæði eða friðlýsa það meðan virkjanakostur er í endurmati. Í lögfræðiálitinu segir að „Stjórnvöldum er óheimilt að veita leyfi tengd orkurannsóknum eða orkuvinnslu vegna virkjunarkostsins [...] Þá hvílir einnig áfram sú skylda á stjórnvöldum að hefja undirbúning að friðlýsingu svæða í verndarflokki.“ verkefnisstjórn ekki skyldug til að gera þetta, skv. lagatúlkun umhverfisráðuneytisins, nema hún meti það svo að „til staðar séu breyttar forsendur sem leiði til þess að þörf sé á að meta virkjunarkostinn að nýju“.Ekkert gert meðan reglugerðina vantar Staða Orkustofnunar og verkefnastjórnar 3. áfanga rammaáætlunar er nokkuð sérstök. Beðið er reglugerðar um virkjunarkosti frá stjórnvöldum sem eru forsenda þess að Orkustofnun geti stillt upp nánar þeim virkjanakostum sem til greina koma, og á meðan er verkefnastjórnin í lausu lofti. Reglugerðin er í raun forsenda þess að vinna verkefnisstjórnar geti hafist, þar sem ekki er hægt að fá öll gögn frá virkjunaraðilum og Orkustofnun fyrr en reglugerðin er tilbúin. Reglugerðin mun vera langt komin og í yfirlestri í atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu. Reglugerðin er unnin með umhverfis- og auðlindaráðuneytingu, sem rammaáætlun heyrir undir.
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Innlent Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Erlent Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Erlent Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Erlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent Færir nýársboðið fram á þrettándann Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Fleiri fréttir Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Sjá meira