Velja á milli stelpna í Versló Samúel Karl Ólason skrifar 29. mars 2014 12:53 Vísir/Hörður
Búið er að setja upp vefsíðu með myndum af kvenkyns nemendum í 4. bekk Verslunarskóla Íslands. Þar geta notendur hverju sinni valið á milli tveggja stúlkna sem raðast svo í topp tíu lista. Síðan heitir peysopicker.com, sem vísar til Peysufatadagsins sem haldinn er í skólanum árlega. Peysufatadagurinn í ár verður haldinn hátíðlegur þann 29. apríl. „Þetta er með ólíkindum, óþverraskapur,“ segir Ingi Ólafsson, skólastjóri Verslunarskólans í samtali við Vísi. „Ég hef reynt í allan morgun að finna hver stendur að baki þessarar síðu og allir starfsmenn skólans eru með fálma úti. Það hefur þó ekki gengið.“ Þá segist Ingi vonast til þess að nemendur skólans muni segja frá hver standi að baki síðunni. „Það er nú bara þannig í svona samfélagi að einhverjir nemendur vita þetta og munu koma fram. Það er alveg jafn sorglegt fyrir það að einhver skuli láta svona,“ segir Ingi Ólafsson. Lén síðunnar var skráð í gegnum bandarískan vefhýsil þann 26. mars og var greitt fyrir með Bitcoin. Þá hefur stofnandi hennar keypt aðgang að nafnleyndarþjónustu Net Earth og skráð lénið þar. Því er næsta ómögulegt að komast að því hver eigandi síðunnar sé nema einhver greini frá því. Sambærileg síða var gerð í fyrra og þá með .is léni.Uppfært klukkan 14:15: Síðan hefur verið tekin niður.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira