Óskandi að geta haldið áfram reynslunni ríkari Samúel Karl Ólason skrifar 2. mars 2014 17:06 Steinunn Rögnvaldsdóttir, talskona Femínistafélags Íslands. Vísir/GVA
Steinunn Rögnvaldsdóttir, talskona Femínistafélags Íslands, segir að stuðningur við fórnarlömb netníðs hafi ekki komist nægilega til skila í viðtölum hennar við fjölmiðla undanfarið. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hún skrifaði á Fésbókarsíðu Fémínistafélags Íslands í dag. Vill hún árétta að ofbeldi eða hótanir þar um séu aldrei réttlætanlegar. Vísar hún til ummæla sem Hildur Lilliendahl hefur orðið uppvís að. Þá segist hún og Femínistafélagið taka afstöðu með þolendum ofbeldis og hvetur þá til að skila skömminni þangað sem hún eigi heima. Hér að neðan má lesa yfirlýsingu Steinunnar í heild sinni:Undirrituð talskona Femínistafélags Íslands vill í ljósi umræðu undanfarinna daga árétta að ofbeldi eða hótanir þar um eru aldrei réttlætanlegar. Þau ummæli sem Hildur Lilliendahl Viggósdóttir hefur orðið uppvís að eru ljót og meiðandi. Hún hefur sjálf axlað ábyrgð á þeim og er það vel. Nú bíður hennar að reyna á ný að byggja upp traust kjósi hún að halda femínískri baráttu sinni áfram.Eins og kom fram í máli mínu í fjölmiðlum þá er netníð alltaf netníð sama hver á í hlut. Af orðum mínum í viðtali við Ísland í dag sl. föstudag gæti mátt skilja að mál Hildar væri frábrugðið öðrum málum af sama toga. Ég vil árétta að það er að sjálfsögðu ekki rétt og miður að það hafi verið niðurstaða fréttaflutningsins.Í viðtalinu tók ég þá ákvörðun að staldra við og stíga varlega til jarðar, vera ekki peð í einhverju tafli, reyna að taka þetta málefnalega og yfirvegað, reyna að særa sem fæsta og sætta sem flesta. Það var ekki í boði, heldur var ég þráspurð og mér lögð orð í munn. Við því spyrnti ég fótum og afleiðingin var sú að stuðningur við þolendur komst ekki nógu vel til skila. Ég harma það og styð þolendur ákaflega, því netníð er sársaukafullur og alvarlegur hlutur, alltaf, sama hver á í hlut.Ég, líkt og Femínistafélag Íslands, tek afstöðu með þolendum ofbeldis og hvet þá til að skila skömminni þangað sem hún á heima.Nú er það verkefni mitt, eins og annarra sem standa nærri þeim sem gerast sekir um ofbeldi, að læra af reynslunni. Það er óskandi að við getum haldið áfram héðan í frá, reynslunni ríkari, og haldið áfram baráttu fyrir kvenfrelsi og möguleikum allra á lífi án ofbeldis.Steinunn Rögnvaldsdóttir, talskona Femínistafélags Íslands
Tengdar fréttir Femínismi er meira en Hildur Lilliendahl „Þetta sýnir það einmitt að það sem þú setur á internetið það er á internetinu og það fer ekkert. Það er eins gott að passa sig“, segir Steinunn Rögnvaldsdóttir, talskona Femínista. 28. febrúar 2014 11:00 „Ég ætla ekki að standa hér og segja að Hildur Lilliendahl sé með kvenfyrirlitningu“ "Orð Hildar á netinu er ekki nægilega góð og það er mjög mikilvægt að halda því á lofti að netníð er netníð og femínistar eru á móti því,“ segir Steinunn Rögnvaldsdóttir, talskona Femínistafélags Íslands, í viðtali við Sindra Sindrason í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld. 28. febrúar 2014 21:04 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Sjá meira
Femínismi er meira en Hildur Lilliendahl „Þetta sýnir það einmitt að það sem þú setur á internetið það er á internetinu og það fer ekkert. Það er eins gott að passa sig“, segir Steinunn Rögnvaldsdóttir, talskona Femínista. 28. febrúar 2014 11:00
„Ég ætla ekki að standa hér og segja að Hildur Lilliendahl sé með kvenfyrirlitningu“ "Orð Hildar á netinu er ekki nægilega góð og það er mjög mikilvægt að halda því á lofti að netníð er netníð og femínistar eru á móti því,“ segir Steinunn Rögnvaldsdóttir, talskona Femínistafélags Íslands, í viðtali við Sindra Sindrason í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld. 28. febrúar 2014 21:04