Lífið

Gunnar Nelson og Ólafur Ragnar í Leifsstöð

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Mjölnir MMA
Gunnar Nelson er nú á leið til London þar sem hann mun berjast við Rússann Omari Akhmedov á laugardaginn. Meðfylgjandi mynd af Gunnari, Haraldi föður hans og Jón Viðari Arnþórssyni var birt á Facebooksíðu Mjölnis í morgun. Hún var tekin á Leifsstöð í morgun.

Athygli vekur að í bakgrunni myndarinnar sitja þeir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.

Með myndinni fylgir textinn: „Komnir í lounce-ið á flugvellinum, nú er það Saga-Class, Óðinn blessi mr. Dana White! ...já krakkar þetta er forsetinn og Kári Stefánsson fyrir aftan okkur. ‪#‎mjolnirmma“

MMA





Fleiri fréttir

Sjá meira


×