Sinubrennur bænda verði bannaðar Svavar Hávarðsson skrifar 6. mars 2014 10:09 Mengun, hætta, kostnaður og óþægindi íbúa er nefnt sem rök fyrir banni við sinubrennum. Fréttablaðið/GVA
Það er álit Mannvirkjastofnunar að banna beri sinubrennur alfarið. Ef sátt um slíkt bann fæst ekki í samráði við samtök bænda telur stofnunin að reglur um veitingu leyfa til sinubrenna verði teknar til gagngerrar endurskoðunar og leyfum markaður mun skýrari og strangari rammi. Þetta kemur fram í svari Mannvirkjastofnunar til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins við erindi um álit stofnunarinnar á því hvort banna eða takmarka eigi sinubrennur. Innan ráðuneytisins er unnið að frumvarpi til laga um varnir gegn gróðureldum, og er málið á þingmálaskrá yfirstandandi þings. Þeir sem kallaðir voru til ráðgjafar eru sammála Mannvirkjastofnun um bann eða strangar reglur; Félag slökkviliðsstjóra, Umhverfisstofnun og margir sýslumenn úti um land. Þessi hópur benti á að af sinubrennum stafaði mengun, hætta, kostnaður og óþægindi fyrir íbúa. Fram kom hjá sýslumanninum á Húsavík og kollega hans í Borgarnesi að kvörtunum íbúa vegna sinubrenna bænda fari fjölgandi. Bændasamtök Íslands lögðu hins vegar áherslu á að allar breytingar væru vel ígrundaðar og rökstuddar, enda byggðust sinubrennur bænda „á gamalli hefð og það væru ekki endilega þær brennur sem væru að valda ónæði eða tjóni“, eins og segir í bréfinu en samkvæmt upplýsingum frá BÍ eru samtökin sammála því sjónarmiði að skýra þurfi lögin og reglugerðina sem þeim fylgir. Í bréfinu tekur Mannvirkjastofnun eindregna afstöðu: „Fyrir liggur að sinubrennur valda mengun og óþægindum fyrir fólk í nánasta umhverfi. Fari sinubrenna úr böndunum og kalla þarf til slökkvilið lendir sá kostnaður á íbúum viðkomandi sveitarfélags. Með breytingum á veðráttu og breyttum búskaparháttum hefur hætta vegna sinubrenna aukist síðustu ár á sama tíma og gagnsemi hennar í landbúnaði er í besta falli umdeild.“ Ingibjörg Halldórsdóttir, lögfræðingur hjá Mannvirkjastofnun og bréfritari, segir að við vinnuna hafi komið í ljós að sinubrennur tíðkast aðeins á nokkrum svæðum á landinu, og fáir einstaklingar á afmörkuðum svæðum hafi sótt um slík leyfi á undanförnum tíu árum. Leyfisveitingarnar séu að stærstum hluta gefnar út af sýslumönnum fimm umdæma; sýslumanni Snæfellinga í Stykkishólmi og sýslumönnunum á Blönduósi, á Húsavík, í Borgarnesi og í Vík. Umdæmin eru alls 24.Sama gildi um áramót og bændabrennur Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar, benti á það á ráðstefnu Sambands sveitarfélaga um gróðurelda í janúar í fyrra, að mikið ósamræmi væri við leyfisveitingar þegar kæmi að meðferð elds á víðavangi. Áramótabrenna væri háð leyfi landeiganda, slökkviliðs og umsagnar heilbrigðiseftirlits. Þá bæri að vátryggja fyrir hugsanlegum skaða fyrir allt að 150 milljónir króna. Bóndi þarf einungis að hafa samband við búnaðarfélag til að fá umsögn. Að því fengnu skrifar sýslumaður út leyfi til sinubrennslu án þess að greiðsla komi fyrir eða beðið sé um tryggingar. Bóndinn beri í raun litla ábyrgð ef illa fer, og sé því síður krafinn um greiðslu vegna skemmda eða kostnaðar slökkviliðs ef til útkalls kemur. Í bréfi Mannvirkjastofnunar til umhverfisráðuneytisins segir að „brýna nauðsyn ber til að auka aðkomu slökkviliðsstjóra, náttúruverndaryfirvalda og heilbrigðiseftirlits að leyfisveitingunni og auka til muna eftirlit með framkvæmdinni. Jafnframt þarf að setja skýrari ákvæði í löggjöfina um að leyfishafi sé ábyrgur fyrir greiðslu kostnaðar af slökkvistarfi ef brenna fer úr böndunum og jafnvel að sett verði ákvæði um skyldu til að kaupa vátryggingu áður en eldur er kveiktur sambærilegt við það sem gildir um áramótabrennur.“
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira