Landmótun átti vinningstillöguna um Geysissvæðið Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 6. mars 2014 17:56 Í áliti dómnefndar um vinningstillögu segir að heildarlausn sé vel útfærð og að tillagan leysi vel þær forsendur sem lagt var upp með. Mynd/Landmótun sf
Fjórtán tillögur bárust í hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Geysissvæðisins í Haukadal og liggja úrslit nú fyrir. Í tilkynningu segir að dómnefndin hafi verið samhljóma þegar kom að því að velja vinningstillöguna. Það var Landmótun sf sem hlaut fyrstu verðlaun en höfundar hennar eru Guðrún Ragna Yngvadóttir arkitekt, Jóhann Sindri Pétursson mastersnemi í landslagsarkitektúr, Einar E. Sæmundsen, Lilja K. Ólafsdóttir og Yngvi Þór Loftsson, landslagsarkitektar FÍLA í samstarfi við Argos arkitekta, Grétar Markússon og Stefán Örn Stefánsson, arkitekta AÍ. Ráðgjöf veitti Gagarín ehf, margmiðlunarstofa. Í áliti dómnefndar um vinningstillögu segir að heildarlausn sé vel útfærð og að tillagan leysi vel þær forsendur sem lagt var upp með. Lega stíganna sé raunhæf og til þess fallinn að mynda gott flæði. Upplifunarstígum og útsýnispöllum sé vel fyrirkomið, sjónlínum haldið hreinum, og aðgangur opnaður að fleiri hverum. Vonir standa til þess að verðlaunaðar hugmyndir verði nýttar í áframhaldandi vinnu við gerð heildarskipulags fyrir svæðið og að hefja megi uppbyggingu á svæðinu á grundvelli þeirrar vinnu. Önnur verðlaun hlaut Arkiteó, Magdalena Sigurðardóttir arkitekt, Hulda Sigmarsdóttir arkitekt og Einar Ólafsson arkitekt FAÍ. Þriðju verðlaun hlutu Arkís arkitektar ehf, Birgir Teitsson arkitekt FAÍ og Sara Axelsdóttir arkitekt en ráðgjafar við tillögugerð voru þeir Hermann Ólafsson landslagsarkitekt FÍLA og Guðjón L. Sigurðsson lýsingarhönnuður PLDA. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða veitti Bláskógabyggð styrk til þess að efna til samkeppninnar sem var haldinn í samvinnu við landeigendur Geysissvæðisins. Samkeppnin fór fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Formaður dómnefndar var Halldóra Vífilsdóttir arkitekt og aðstoðarforstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins. Aðrir í dómnefnd voru Birgir Þröstur Jóhannsson arkitekt FAÍ, Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi, fulltrúi Bláskógabyggðar, Sigurður Másson fulltrúi Landeigendafélags Geysis ehf og Ulla Rolfsigne Pedersen landslagsarkitekt FÍLA. Sýning á öllum innsendum tillögum er nú við Geysi í Haukadal.Vonir standa til þess að verðlaunaðar hugmyndir verði nýttar í áframhaldandi vinnu við gerð heildarskipulags fyrir svæðið.Mynd/Landmótun sf
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira