Innlent

Landmótun átti vinningstillöguna um Geysissvæðið

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Í áliti dómnefndar um vinningstillögu segir að heildarlausn sé vel útfærð og að tillagan leysi vel þær forsendur sem lagt var upp með.
Í áliti dómnefndar um vinningstillögu segir að heildarlausn sé vel útfærð og að tillagan leysi vel þær forsendur sem lagt var upp með. Mynd/Landmótun sf
Fjórtán tillögur bárust í hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Geysissvæðisins í Haukadal og liggja úrslit nú fyrir.

Í tilkynningu segir að dómnefndin hafi verið samhljóma þegar kom að því að velja vinningstillöguna. Það var Landmótun sf sem hlaut fyrstu verðlaun en höfundar hennar eru Guðrún Ragna Yngvadóttir arkitekt, Jóhann Sindri Pétursson mastersnemi í landslagsarkitektúr, Einar E. Sæmundsen, Lilja K. Ólafsdóttir og Yngvi Þór Loftsson, landslagsarkitektar FÍLA í samstarfi við Argos arkitekta, Grétar Markússon og Stefán Örn Stefánsson, arkitekta AÍ. Ráðgjöf veitti Gagarín ehf, margmiðlunarstofa.

Í áliti dómnefndar um vinningstillögu segir að heildarlausn sé vel útfærð og að tillagan leysi vel þær forsendur sem lagt var upp með. Lega stíganna sé raunhæf og til þess fallinn að mynda gott flæði. Upplifunarstígum og útsýnispöllum sé vel fyrirkomið, sjónlínum haldið hreinum, og aðgangur opnaður að fleiri hverum.

Vonir standa til þess að verðlaunaðar hugmyndir verði nýttar í áframhaldandi vinnu við gerð heildarskipulags fyrir svæðið og að hefja megi uppbyggingu á svæðinu á grundvelli þeirrar vinnu.

Önnur verðlaun hlaut Arkiteó, Magdalena Sigurðardóttir arkitekt, Hulda Sigmarsdóttir arkitekt og Einar Ólafsson arkitekt FAÍ.

Þriðju verðlaun hlutu Arkís arkitektar ehf, Birgir Teitsson arkitekt FAÍ og Sara Axelsdóttir arkitekt en ráðgjafar við tillögugerð voru þeir Hermann Ólafsson landslagsarkitekt FÍLA og Guðjón L. Sigurðsson lýsingarhönnuður PLDA.

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða veitti Bláskógabyggð styrk til þess að efna til samkeppninnar sem var haldinn í samvinnu við landeigendur Geysissvæðisins. Samkeppnin fór fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Formaður dómnefndar var Halldóra Vífilsdóttir arkitekt og aðstoðarforstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins. Aðrir í dómnefnd voru Birgir Þröstur Jóhannsson arkitekt FAÍ, Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi, fulltrúi Bláskógabyggðar, Sigurður Másson fulltrúi Landeigendafélags Geysis ehf og Ulla Rolfsigne Pedersen landslagsarkitekt FÍLA.

Sýning á öllum innsendum tillögum er nú við Geysi í Haukadal.

Vonir standa til þess að verðlaunaðar hugmyndir verði nýttar í áframhaldandi vinnu við gerð heildarskipulags fyrir svæðið.Mynd/Landmótun sf



Fleiri fréttir

Sjá meira


×