Rúta fór utan vegar með á sjöunda tug farþega Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 8. mars 2014 14:20 VÍSIR/VILHELM
Miklar annir eru hjá björgunarsveitum vegna ófærðar á Lyngdalsheiði, Mosfellsheiði, Hellisheiði, Þrengslum og á Þingvöllum. Rúta með á sjöunda tug farþega fór útaf í Skógarhlíðarbrekku í Þrengslum. Verið er að sækja fólkið og munu björgunarsveitir flytja það í fjöldahjálparstöð sem Rauði krossinn er að opna í Grunnskólanum í Þorlákshöfn. Á Hellisheiði situr fjöldi bíla fastur en á þessari stundu er ekki vitað nákvæmlega um umfangið. Verið er að flytja 20 manns úr bílum sínum á Lyngdalsheiði og á Mosfellsheiði er talið að á milli 20-30 bílar sitji fastir. Björgunarsveitir eru einnig að sækja ferðafólk sem kemst ekki leiðar sinnar af Þingvöllum en það bíður aðstoðar í Þjónustumiðstöðinni. Björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni hefur verið kölluð út á Lyngdalsheiði til að losa fasta bíla en Vegagerðin mun loka veginum yfir heiðina að því verki loknu. Mikil umferð hefur verið yfir heiðina síðan í morgun, bæði einkabílar og rútur, þrátt fyrir slæma færð og vont veður. Erlendir ferðamenn sitja fastir í bíl á afleggjarnum að Reynisvatni og vinnur björgunarsveitin Víkverji í Vík að því að losa þá. Þá aðstoðar Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð ferðafólk í ógöngum í Skiptabakka. Veðurstofa Íslands hefur varað við stormi víða um land í dag og fram á nótt. Einnig er búist við mikilli úrkomu suðaustanlands síðdegis og hvössum vindhviðum við fjöll, einkum sunnan- og vestanlands. Slysavarnafélagið Landsbjörg minnir fólk á að vera ekki á ferðinni þar sem veður er slæmt nema brýna nauðsyn beri til og þá aðeins á vel búnum bílum. Einnig er tilefni til að árétta að ætíð skal virða lokanir vega.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira