Sport

Stelpurnar kláruðu báðar svigið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helga María Vilhjálmsdóttir og Erla Ásgeirsdóttir kláruðu báðar ferðir sínar í svigi kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í dag.

Helga María kom í mark á 1:02,69 mínútum í seinni ferðinni og var á 2:03,22 mínútum í samanlögðum tíma. Það skilaði henni í 34. sætið.

Erla var svo á 1:03,55 mínútum í seinni ferðinni sem dugði í 36. sætið. Samanlagður tími hennar var 2:05,88 mínútur.

Hin bandaríska Mikaela Shiffrin bar sigur úr býtum í greininni á 1:44,54 mínútum en alls náðu 49 keppendur að klára báðar ferðir í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×