Innlent

Aldrei haldið fram að um innlenda vottun væri að ræða

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vísir/Vilhelm
Forstöðumaður Skjásins segir að því hafi aldrei verið haldið fram að sjónvarpsþættirnir The Biggest Loser væru með vottun frá innlendum aðilum.

Sjö samtök heilbrigðisfagfólks sendu frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi vegna þáttanna.

„Við viljum taka það skýrt fram að meint „vottun“ sem þættirnir eru sagðir hafa frá læknum, sálfræðingum og næringarfræðingum á ekki við um fagfólk hér á landi,“ sagði í yfirlýsingunni.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sálfræðingafélag Íslands eru á meðal samtaka sem skrifa undir yfirlýsinguna.

„Við teljum þessa nálgun ekki samræmast faglegum vinnubrögðum og sú framkoma sem þjálfarar sýna keppendum samræmist hvorki siðareglum né lögum um heilbrigðisstarfsmenn.

Pálmi Guðmundsson, forstöðumaður ljósvakamiðla Skjásins, sendi fréttastofu RÚV yfirlýsingu í dag í kjölfar gagnrýni samtakanna sjö.

„Það er rétt að við vísum í að þættirnir séu vottaðir af læknum, sálfræðingum og næringarfræðingum en höfum aldrei tekið fram að innlenda vottun sé að ræða enda er formatið erlent,“ segir Pálmi.

„Þættirnir byggja á heilbrigði og mikið er lagt upp úr eftirliti með keppendum. Við framleiðslu þáttanna hér á landi var fylgt eftir fyrirmælum erlendu framleiðandanna hvað varðar þá þjónustu sem keppendum skyldi veitt. Allir keppendur fóru í gegnum ítarlega læknisrannsókn áður en þeir hófu æfingarferlið,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá segir að samkvæmt reglum þáttanna hafi sjúkrahús eða læknisaðstoð ávallt verið í innan við fimmtán mínútna fjarlægð við æfingar og hjúkrunarfræðingur hafi alltaf verið viðstaddur þrautir. Þá hafi keppendur alltaf haft aðgang að geðhjúkrunarfræðingi.

„Vottun þessi sem vísað er í af framleiðendum er því sú vottun sem fylgir alþjóðlegaformatinu The Biggest Loser."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×